Bæjarstjórnarfundur í beinni
_DSC0045
Frá fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

1621. fundur bæjarstjórnar Vestmannaeyja verður haldinn í Ráðhúsinu í dag, þriðjudaginn 25. nóvember og hefst hann kl. 14:00. Á dagskrá fundarins er meðal annars síðari umræða um fjárhagsáætlun næsta árs og húsnæðisáætlun sveitarfélagsins. Alla dagskrá fundarins má sjá fyrir neðan útsendingarammann.

Dagskrá:

Almenn erindi
1. 202504032 – Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2026
-Seinni umræða-
2. 202510110 – Þriggja ára fjárhagsáætlun 2027-2029
-Seinni umræða-
3. 201906047 – Breytingar á bæjarmálasamþykkt Vestmannaeyjabæjar
4. 201006074 – Kosning í ráð, nefndir og stjórnir skv. 42. gr. bæjarmálasamþykktar Vestmannaeyjabæjar.
5. 201705071 – Húsnæðisáætlun
Fundargerðir
6. 202510008F – Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyja – 321
Liðir 6.1.-6.5. liggja fyrir til upplýsinga.
7. 202510011F – Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja – 429
Liður 7.1., Breyting á aðalskipulagi – NSL4 Neysluvatnslögn til Eyja, liggur fyrir til staðfestingar. Um er að ræða staðfestingu á kynningu á vinnslustigi.

Liður 7.3., Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs, liggur fyrir til staðfestingar. Um er að ræða staðfestingu á auglýsingu svæðisáætlunar.

Liður 7.5., Miðstræti 7 og 11a, Vestmannabraut 20 og 28b – umsókn um breytingu á deiliskipulagi, liggur fyrir til staðfestingar. Um er að ræða staðfestingu á deiliskipulagsbreytingu.

Liðir 7.2., 7.4. og 7.6. liggja fyrir til upplýsinga.

8. 202510005F – Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja – 328
Liður 8.1., Seatrade Global – Cruise Iceland, liggur fyrir til umræðu.

Liður 8.5., Íþróttahús – Framkvæmdir 2025, liggur fyrir til umræðu.

Liðir 8.2.-8.4. og 8.6. liggja fyrir til upplýsinga.

9. 202511001F – Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyja – 322
Liður 9.2, Sköpunarhús, liggur fyrir til umræðu.

Liður 9.3., Lengd viðvera eftir skóla, liggur fyrir til staðfestingar. Um er að ræða staðfestningu á reglum.

Liðir 9.1.og 9.4. liggja fyrir til upplýsinga.

10.      202511002F – Bæjarráð Vestmannaeyja – 3248
Liður 10.6., Mannauðsstefna, liggur fyrir til staðfestingar.

Liður 10.9., Endurgreiðsluhlutfall vegna réttindasafns starfsmanna Vestmannaeyjabæjar, liggur fyrir til staðfestingar.

Liðir 10.1.-10.5., 10.7.-10.8. og 10.10.-10.14. liggja fyrir til upplýsinga.

11. 202511005F – Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja – 430
Liður 11.2., Stækkun iðnaðarsvæðis í Viðlagaföru – Breyting á aðal- og deiliskipulagi, liggur fyrir til staðfestingar. Um er að ræða staðfestingu á kynningu á tillögu á vinnslustigi.

Liður 11.3., Ofanleiti skipulagsáætlanir athafnasvæði AT-4, liggur fyrir til staðfestingar. Um er að ræða staðfestingu á skipulagsáætlunum.

Liður 11.5., Strandvegur 44 – Umsókn um breytingu á deiliskipulagi, liggur fyrir til staðfestingar. Um er að ræða auglýsingu á breyttu deiliskipulagi.

Liðir 11.1., 11.4. og 11.6.-11.7. liggja fyrir til upplýsinga.

12. 202511006F – Fræðsluráð Vestmannaeyja – 400
Liður 12.3, Gjaldskrá leikskóla, liggur fyrir til staðfestingar. Um er að ræða staðfestingu á nýjum ramma um leikskólastarf og gjaldskrá.

Liður 12.5., Grunnskóli Vestmannaeyja, liggur fyrir til umræðu.

Liðir 12.1.-12.2. og 12.4. liggja fyrir til upplýsinga.

Nýjustu fréttir

Allison Clark tryggði ÍBV jafntefli með marki í blálokin
Staða mála hjá Herjólfi
Embla Harðardóttir sleit krossband gegn FH
Rannsóknarhola Eyjaganga komin á beinu brautina á ný
Herjólfur með sjö ferðir til Landeyjahafnar í dag
Geta Eyjastúlkur haldið pressunni á Breiðablik?
Díana Dögg og Andrea spila oddaleik um þýska meistaratitilinn
Herjólfur til Þorlákshafnar
viðburðir
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.