Stækkun athafnasvæðis í Ofanleiti fær samþykki í ráði
Fjöldi athugasemda frá sumarhúsaeigendum, málið nú á leið til bæjarstjórnar
25. nóvember, 2025
Hluti af umræddu svæði. Ljósmynd/aðsend

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt fyrir sitt leyti stækkun athafnasvæðis AT-4 í Ofanleiti og leggur til við bæjarstjórn að breyting á aðalskipulagi og nýtt deiliskipulag verði staðfest. Lögð hefur verið fram greinargerð með samantekt á umsögnum og svörum bæjaryfirvalda og er málið nú vísað áfram til bæjarstjórnar.

Ráðið fjallaði um málið á grundvelli tillagna sem bæjarstjórn samþykkti að auglýsa 11. júní 2025. Tillögurnar fela í sér breytingu á aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015–2035 vegna stækkunar athafnasvæðis AT-4, nýtt deiliskipulag fyrir athafnasvæðið við Ofanleitisveg og breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í Ofanleiti.

Stækkar úr 0,7 í 1,3 hektara

Í greinargerð kemur fram að gert er ráð fyrir breyttum skipulagsmörkum AT-4 þannig að lóð við Ofanleitisveg 26, sem nú er hluti af frístundabyggð F-1, og syðsti hluti landbúnaðarsvæðis L-4, færist inn á athafnasvæðið. Við það stækkar landnotkunarreitur AT-4 úr 0,7 hekturum í um 1,3 hektara.

Nýtt deiliskipulag gerir m.a. ráð fyrir byggingarreitum fyrir geymslu- og athafnarými á lóðum við Ofanleitisveg 25 og 26, auk nýrra lóða við Ofanleitisveg 30 og 30a. Settir eru fram skilmálar um umhverfisfrágang, jarðvegsmanir milli athafnasvæðis og frístundabyggðar, lága og hóflega lýsingu, geymslu lausamuna og frágang byggingarefna.

Í aðalskipulaginu eru áherslur um að ásýnd svæðisins verði aðlaðandi og að hugað sé sérstaklega að hljóðvist og lágmörkun ónæðis gagnvart frístundabyggð.

22 umsagnir á auglýsingatíma

Skipulagsáætlanirnar voru auglýstar í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar frá 9. september til 21. október 2025. Alls bárust 22 umsagnir frá 13 aðilum, þar af frá stofnunum, slökkviliði og fjölda lóðarhafa í frístundabyggðinni.

Umsagnir bárust m.a. frá Náttúruverndarstofnun, Náttúrufræðistofnun, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Slökkviliði Vestmannaeyja, Minjastofnun Íslands og fjölmörgum eigendum sumarhúsa við Ofanleitisveg.

Náttúrufræðistofnun og Heilbrigðiseftirlit Suðurlands gera ekki athugasemdir við breytingarnar. Náttúruverndarstofnun minnir á að fornleifaskráningu þurfi að ljúka áður en aðalskipulag er endanlega staðfest, en Minjastofnun telur svæði AT-4 þegar svo mikið raskað að hún geri ekki kröfu um fornleifaskráningu þar.

Slökkvilið Vestmannaeyja gerir ekki athugasemdir við skipulagið sem slíkt, en ítrekar „enn og aftur“, að nauðsynlegt sé að leggja viðeigandi lagnir og setja upp brunahana á svæðinu þar sem fjarlægð í næsta brunahana sé nú yfir 500 metrar. Vestmannaeyjabær svarar því til að bæjarfélagið muni fylgja lögum um brunavarnir og viðeigandi reglugerðum.

Mikil andstaða meðal sumarhúsaeigenda

Megnið af athugasemdum barst frá eigendum sumarhúsa og orlofshúsa í frístundabyggð F-1. Þeir lýsa yfir harðri andstöðu við að hluti frístundasvæðisins verði færður undir athafnasvæði og að byggingarmagn á AT-4 verði aukið verulega.

Í athugasemdum sumarhúsaeigenda eru m.a. nefnd eftirfarandi atriði:

  • að frístundabyggð sé einkum valin vegna kyrrðar, náttúru, útsýnis og friðar,

  • að aukin umferð, þar á meðal þungaflutningar, muni auka hávaða og draga úr öryggi barna í hverfinu,

  • að ljósmengun og hærri byggingar muni skerða útsýni, stjörnusýn og upplifun svæðisins,

  • að uppbygging athafnasvæðis við frístundabyggð geti rýrt verðmæti sumarhúsalóða,

  • að frístundabyggð og iðnaðar- eða geymslustarfsemi eigi illa samleið.

Nokkrir eigendur vísa til þess að þeir hafi keypt lóðir og byggt hús á grundvelli gildandi skipulags og að þeir hafi haft „lögmætar væntingar“ um að svæðið yrði áfram frístundabyggð. Einnig er vísað til jafnræðissjónarmiða og Landsskipulagsstefnu og fullyrt að breytingin þjóni fyrst og fremst sérhagsmunum fárra aðila.

Í nokkrum umsögnum er boðað að verði tillagan samþykkt muni eigendur skoða kæru til úrskurðarnefndar eða dómstóla og áskilja sér jafnframt rétt til skaðabótakröfu gagnvart Vestmannaeyjabæ vegna ætlaðrar verðrýrnunar eigna.

Bæjaryfirvöld vísa til mikillar eftirspurnar eftir geymsluhúsnæði

Í svörum umhverfis- og skipulagsráðs, sem birtast í greinargerðinni, er ítrekað vísað til þess að mikil eftirspurn sé eftir geymsluhúsnæði í Vestmannaeyjum. Bent er á að verðmætt athafnahúsnæði nærri höfninni sé í töluverðum mæli nýtt sem geymslurými fyrir búnað sem ekki tengist atvinnustarfsemi og að það hamli aðgengi þeirra sem vilji hefja atvinnurekstur.

Ráðið bendir á að:

  • lóðin við Ofanleitisveg 26 hafi samkvæmt eldra skipulagi verið ætluð sem aðstöðuhús fyrir frístundabyggð og síðar fyrir allt að 11 smáhýsi,

  • lóðin hafi í reynd aldrei nýst sem slíkt aðstöðuhús heldur sem samkomusalur,

  • yfirborð lóðarinnar sé þegar raskað, vegtenging fyrir hendi og innviðir nálægt, svo ekki þurfi að „brjóta nýtt land“ fyrir fyrirhugaða starfsemi.

Því sé talin hæfileg og eðlileg nýting að færa lóðina inn á athafnasvæði AT-4 og heimila þar geymslurými, enda sé í aðalskipulagi lögð sérstök áhersla á vandaðan frágang, hljóðvist og að lágmarka ónæði gagnvart frístundabyggð.

Auk þess er tekið fram að umfangsmeiri atvinnustarfsemi sé tekin frá á athafnasvæði AT-3, handan norðurenda flugbrautarinnar og við Dalveg, þar sem gert sé ráð fyrir stærri og þyngri iðnaðarstarfsemi.

Varnir gagnvart ónæði – manir og lág lýsing

Í svörum ráðsins er einnig lögð áhersla á að í nýju deiliskipulagi séu ákveðnar mótvægisaðgerðir innbyggðar. Þar má nefna:

  • jarðvegsmanir milli athafnasvæðis og frístundalóða til að draga úr sjón- og hljóðmengun,

  • ákvæði um lága og hóflega lýsingu til að minnka ljósmengun,

  • skilmála um snyrtilegan frágang lóða, geymslu lausamuna og frágang sorps.

Sumarhúsaeigendur draga hins vegar í efa að þessar aðgerðir muni nægja til að tryggja sömu lífsgæði og áður og benda á að þegar séu dæmi um umgengni á athafnalóðum við Ofanleiti sem þeir telji ekki samræmast skilmálum um snyrtilegan frágang.

Gera ekki kröfu um fornleifaskráningu

Eins og fram kemur í umsögn Minjastofnunar er svæði AT-4 talið þegar mikið raskað vegna bygginga, bílastæða og léttiðnaðarstarfsemi. Af þeim sökum gerir stofnunin ekki kröfu um fornleifaskráningu eða rannsóknir á því svæði, en tekur fram að öðru máli kunni að gegna um hluta landbúnaðarsvæðis L-4, sem fjallað verði um í annarri umsögn.

Næstu skref

Umhverfis- og skipulagsráð þakkar í bókun sinni öllum sem sendu inn umsagnir og leggur greinargerð með svörum ráðsins fram með málinu. Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti að staðfesta skipulagsáætlanirnar í Ofanleiti og hefur vísað erindinu áfram til bæjarstjórnar Vestmannaeyja til endanlegrar afgreiðslu.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.