Vestmannaeyjabær leggur 30 milljónir í Eyjagöng
Haraldur og Íris skrifa undir. Ljósmynd/vestmannaeyjar.is.

Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri Vestmannaeyja og Haraldur Pálsson fyrir hönd félagsins Eyjagöng ehf. undirrituðu samning um 30 milljón króna hlutafjárframlag sem Vestmannaeyjabær hefur samþykkt að leggja inn í félagið. Markmið félagsins er að fjármagna grunnrannsóknir á jarðlögum milli lands og Vestmannaeyja vegna mögulegrar jarðgangagerðar.

Í frétt á vef bæjaryfirvalda segir að þetta sé stórt skref og verður spennandi að fylgjast með framvindunni. Félagið mun halda opinn fund hér í Eyjum í janúar næstkomandi.

Þessu tengt: Jarðrannsóknir milli lands og Eyja í bígerð

Nýjustu fréttir

Kröfu um gæsluvarðhald hafnað
„60 milljónir eru þeim ofviða“
Vestmannaeyjar í fókus hjá bresku sjávarútvegsblaði
Eyjamaðurinn: Elís Þór
Miðflokkurinn býður fram í Eyjum
Kyrrðarbæn í dag
Tveir handteknir í tengslum við andlát
Vera Lífsgæðasetur og LifeLine Health hefja samstarf
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.