Jólalögin sungin af hjartans list í Landakirkju
Hápunkturinn var þegar kórarnir sameinuðust og sungu einni röddu.. Myndir Óskar Pétur.

Það var mikið fjör í Landakirkju í dag þegar fjórir kórar slógu saman með kirkjugestum í einni allsherjar söngveislu. Sungin voru þekkt jólalög og jólasálmar.  Það voru Litlu lærisveinarnir, Kór Landakirkju, Karlakór Vestmannaeyja og Kvennakór Vestmannaeyja sem leiddu sönginn, ýmist einir og sér eða í einum allsherjar kór.

Landakirkja var þétt setinn, prestur var séra Viðar Stefánsson og sameinuðust allir í sannkallaðri jólalagasöngstund rétt fyrir jól eins og undanfarin ár.

Það sýndi sig að það er bæði skemmtilegt og uppbyggjandi að koma saman rétt fyrir jól og syngja jólalögin ásamt öllum góðu kórunum okkar. Tækifæri til að syngja jólalögin hefur fækkað umtalsvert á undanförnum árum og því var þetta kjörin stund til að eiga gleðilega og hátíðlega söngstund saman.

 

 

Nýjustu fréttir

Eyjarnar landa í Grindavík
Sterk uppbygging og skýr framtíðarsýn
Skortur á félagslegum tengslum er dauðans alvara
Síðasta Aglow samvera vetrarins
Landeyjahöfn orðin fær á háflóði
Heimsklassa matreiðslumeistarar frá Íslandi á MATEY
Úrslitaeinvígið: Mæta Val á heimavelli
Herjólfur III í prufusiglingu á miðvikudag
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.