„Þær halda utan um hjartað í Hljómey“ 
Sædís og Kolbrún
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Þann 24. apríl næstkomandi fer tónlistarhátíðin Hljómey fram í Vestmannaeyjum. Þetta er fjórða árið í röð sem þeir félagar Birgir Nielsen og Guðmundur Jóhann Árnason standa að hátíðinni, sem hefur fest sig í sessi sem einn hlýlegasti og persónulegasti tónlistarviðburður landsins. 

Þótt listamennirnir á sviðinu séu í sviðsljósinu, er það langt frá því að vera öll sagan. Á bak við tjöldin er stór hópur fólks sem vinnur að skipulagningu og framkvæmd hátíðarinnar. Þar skipta smáatriðin miklu máli og þar koma Kolbrún (Kolla) og Sædís sterkar inn. 

Við settumst niður með þeim og ræddum hlutverk þeirra í undirbúningi Hljómeyjar og spurðum hvort fiðringurinn væri farinn að gera vart við sig fyrir komandi miðasölu. 

„Við vinnum bak við tjöldin“

Kolbrún segir hlutverk þeirra hafa mótast smám saman eftir því sem hátíðin hefur vaxið. „Við erum kannski ekki alltaf fremst í sviðsljósinu, en við erum svona límið sem heldur þessu saman. Drengirnir sjá um stóru línurnar, bóka listamenn og halda utan um tónlistarhlutann. Við pössum upp á smáatriðin og hjálpum til við að halda öllum á jörðinni.“ 

Sædís tekur undir og segir samstarfið við Guðmund og Bigga mjög náið. „Stundum snýst þetta einfaldlega um að sjá hlutina fyrir áður en þeir verða vandamál.“ 

Smáatriðin skipta mestu máli

Að þeirra sögn er það einmitt þessi hugsun sem geri Hljómey sérstaka – að ekkert sé tilviljun. „Hljómey á að vera persónuleg,“ segir Kolbrún. „Gestir eiga að finna að það sé hugsað um þá, hvort sem það er í dagskránni, umgjörðinni eða stemningunni.“ 

Sædís bætir við að oft séu það minnstu hlutirnir sem hafi mest að segja. „Fólk man kannski ekki nákvæmlega hvert atriði, en það finnur þegar hlutirnir ganga vel. Flæðið milli tónleika, andrúmsloftið í húsunum, þessi heild.“ 

Spenna fyrir miðasölunni

Og hvernig er stemningin fyrir komandi miðasölu? 

„Hún er klárlega farin að gera vart við sig,“ segir Sædís. „Það er alltaf þessi blanda af tilhlökkun og smá stressi, sem er bara góð tilfinning.“ 

Kolbrún segir viðbrögðin hingað til hafa verið afar jákvæð. „Við finnum mikinn áhuga og fólk er farið að spyrja hvenær miðasalan opnar. Það gefur manni rosalega mikið.“ 

Á síðasta ári lamaðist atvinnulífið í Vestmannaeyjum þegar miðasölukerfið hrundi við opnun miðasölu og að lokum seldust mun fleiri miðar en upphaflega var gert ráð fyrir. 

„Við höfum fengið fullvissu um að kerfið haldi í ár,“ segja þær. „Við erum auðvitað pínu montnar af því að þessi litla, krúttlega hátíð hafi sprengt kerfið, en fyrst og fremst viljum við að allir sem vilji fái miða. Það er takmarkað magn í boði og eftirspurnin meiri en framboðið.“ 

Byrjað aðeins fyrr í ár

Venjulega hefst hátíðin með setningu í húsi Landsbankans kl. 16 og fyrstu tónleikar hefjast kl. 20. Hátíðin stendur fram yfir kl. 23 og lýkur fyrir utan Brothers Brewery, þar sem brennukóngur hátíðarinnar kveikir bál, tónlistarmenn taka nokkur lög og slúttað er með einni flugeldabombu. 

„Við höfum fengið ábendingar og viljum hlusta,“ segja þær. „Í ár ætlum við að byrja örlítið fyrr til að teygja dagskrána aðeins. Við ætlum líka að stækka svæðið og skoða hvort hægt sé að bjóða upp á strætó á milli staða. Svo er ýmislegt annað sem við eigum í pokahorninu sem verður vonandi kynnt sem allra allra fyrst. Það verður stór bomba.“ 

Þrátt fyrir breytingar sé kjarninn alltaf sá sami. „Þessi kósý stofustemning, þetta einlæga, heimilislega væb, það verður aldrei tekið úr Hljómey.“ 

Meira en bara tónlistarviðburður

Að lokum eru þær sammála um að Hljómey sé orðin meira en bara tónlistarhátíð. „Fólk kemur ekki bara til að hlusta á tónlist, heldur til að upplifa eitthvað saman. Þegar maður sér allt smella, þá veit maður af hverju maður er að þessu.“ 

Miðasalan er handan við hornið og ljóst að undirbúningurinn er kominn á fullt – og spennan sömuleiðis. Miðasala á Hljómey hefst kl. 10:00 þann 6. febrúar næstkomandi á midix.is. Takmarkað magn miða verður í boði. 

Nýjustu fréttir

„Þær halda utan um hjartað í Hljómey“ 
Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu
Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra
Herjólfur slær met 
Aglow samvera í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.