Díana Dögg öflug í sigri Blomberg-Lippe
Díana Dögg kom inn í hópinn fyrir leikinn í dag gegn Svartfjallalandi. Mynd/HSÍ

Eyjakonan Díana Dögg Magnúsdóttir átti mjög góðan leik með Blomberg-Lippe í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gærkvöldi þegar liðið sigraði Göppingen 40-22.

Díana Dögg skoraði fimm mörk í leiknum og gaf þrjár stoðsendingar. Andrea Jacobsen sem gengur í raðir ÍBV í sumar skoraði tvö mörk og gaf fjórar stoðsendingar.

Þær eru báðar í lokahóp íslenska kvennalandsliðsins sem leikur tvo leiki gegn Svartfjallalandi í byrjun mars, í undankeppni EM. Díana Dögg missir hinsvegar af fyrri leiknum þar sem hún er að fara í lokapróf.

Blomberg-Lippe situr í 2. sæti þýsku deildarinnar með 28 stig, stigi á eftir toppliði Dortmund.

Nýjustu fréttir

Bærinn ósammála ráðuneytinu í þremur uppsagnarmálum
Bleikt boð hjá Krabbavörn Vestmannaeyja
Smári Jökull hjá Sýn 
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum? Ráðherra tekur jákvætt í hugmyndina
Ítalía mun alltaf eiga sérstakan stað í hjartanu
Vestmannaeyjabær óskar eftir niðurstöðum úr PISA
Sæðisprufan hans Sigurgeirs vakti mikla kátínu
Ólöf Ragnarsdóttir, fréttakona á RÚV 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.