Rannveig Ísfjörð hefur tilkynnt að hún gefi kost á sér í 4. sæti í komandi prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Eyjum.
Í tilkynningu sinni rifjar hún upp að dvöl hennar í Eyjum hafi upphaflega átt að vara í þrjá mánuði, en sé nú orðin 173 mánuðir – og ekki sér fyrir endann á henni. Hún segist frá fyrstu tíð hafa dáðst að kraftinum og samheldninni í samfélaginu og hér hafi hún byggt upp heimili, fest rætur og tekið virkan þátt í bæjarlífinu.
Rannveig er gift Pálma Harðarsyni og eiga þau fimm börn saman. Hún segir fjölskylduna móta sýn sína á lífið og mikilvægi ábyrgðar, heilinda og þrautseigju. Hún vilji vera börnum sínum fyrirmynd og sýna að árangur náist með samvinnu og því að gefast ekki upp þegar á móti blæs.
Rannveig er byggingarverkfræðingur með meistaragráðu í framkvæmdastjórnun og er að ljúka meistaragráðu í forystu og stjórnun með áherslu á mannauðsmál. Hún hóf þátttöku í sveitarstjórnarmálum árið 2018 sem varamaður í fræðsluráði. Eftir kosningar 2022 tók hún sæti í framkvæmda- og hafnarráði og situr nú í fjölskyldu- og tómstundaráði, auk þess að eiga sæti í stjórn Herjólfs.
Í námi og starfi segist hún hafa öðlast reynslu af stjórnsýslu, skipulagsmálum og verkefnastjórnun og lært að forgangsraða, leita lausna og taka ábyrgar ákvarðanir.
„Vestmannaeyjar eiga skilið sterka og trausta forystu,“ segir Rannveig og bætir við að hún trúi því að gott samstarf og opin samvinna séu lykillinn að árangri. Hún býður því fram krafta sína og óskar eftir stuðningi í 4. sæti í prófkjörinu sem fram fer 13. mars næstkomandi.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.