Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Kærendur gagnrýna m.a. milljarðskröfu og 5.000 áskrifendur
Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Kæra hefur verið lögð fram til kærunefndar útboðsmála vegna útboðs Vestmannaeyjabæjar um rekstur heilsuræktar við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja.

Í kærunni er því haldið fram að lykilskilyrði útboðsins séu svo íþyngjandi að þau takmarki verulega samkeppni. Sérstaklega er deilt um kröfu um að bjóðendur hafi að lágmarki 1.000 milljónir króna í eigið fé og að minnsta kosti 5.000 virka áskrifendur.

Málið vekur sérstaka athygli í ljósi þess að fyrra útboð bæjarins um sama verkefni var ógilt og Vestmannaeyjabær talinn bótaskyldur.

Sjá einnig: Kærunefnd hafnar endurupptökukröfu

Tímalína málsins

Mars 2025 – Fyrsta útboðið auglýst
Vestmannaeyjabær auglýsir útboð um rekstur og uppbyggingu heilsuræktar við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja.

2025 – Fyrsta kæra lögð fram
Útboðsferlið er kært til kærunefndar útboðsmála.

Júlí 2025 – Bæjarráð hættir við samningsgerð
Í kjölfar kærunnar ákveður bæjarráð að falla frá samningsgerð og stöðva útboðsferlið.

2025 – Úrskurður kærunefndar
Kærunefnd útboðsmála kemst að þeirri niðurstöðu að Vestmannaeyjabær hafi brotið gegn lögum um opinber innkaup. Ákvörðun bæjarins um val á rekstraraðila er felld úr gildi.

Desember 2025 – Bærinn talinn bótaskyldur
Vestmannaeyjabær er talinn bótaskyldur gagnvart kærendum vegna kostnaðar sem þeir urðu fyrir við þátttöku í útboðinu og honum gert að greiða málskostnað.

Janúar 2026 – Nýtt útboð auglýst
Vestmannaeyjabær auglýsir nýtt útboð um rekstur heilsuræktar með breyttum skilmálum.

Mars 2026 – Ný kæra lögð fram
Sporthöllin ehf. og þrír einstaklingar leggja fram nýja kæru til kærunefndar útboðsmála.
Kærendur gera meðal annars athugasemdir við kröfu um 1.000 milljónir króna í eigið fé og að bjóðendur hafi 5.000 virka áskrifendur.

Nánar verður fjallað um málið næstu daga hér á Eyjafréttum.

Þessu tengt: Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn

Nýjustu fréttir

Maí sól – Lag til ömmustelpurnar
Styrkir veittir til fjölbreyttra verkefna
Neyðarkall úr Eyjum
Sigmundur Davíð með opinn fund
Hæsti styrkurinn til Eyja
Dýptarmæling í dag
Eyjalistinn í sókn: Heimasíða og stefnuskrá líta dagsins ljós!
Vinnandi hendur frá hafi til hátíðarborðs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.