Eyjamaðurinn Heimir Hallgrímsson hefur framlengt samning sinn við írska knattspyrnusambandið og verður hann áfram landsliðsþjálfari til ársins 2028. Greint var frá þessu í tilkynningu frá sambandinu í dag, þar sem fram kemur að Heimir hafi skrifað undir nýjan samning sem nær út lok Evrópumótsins 2028.
Heimir staðfesti sjálfur tíðindin á blaðamannafundi í dag, en þar kom fram að hann hygðist halda áfram uppbyggingu liðsins á næstu árum. Heimir, sem er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum, tók við írska landsliðinu árið 2024. Framlenging samningsins er skýr vísbending um traust FAI á störfum hans og framtíðarsýn.
Fram kemur á samfélagsmiðlum írska knattspyrnusambandsins að þetta séu frábærar fréttir fyrir írska knattspyrnu. Heimir mun stýra írska landsliðinu í undanúrslitum umspilsins gegn Tékklandi í Prag næstkomandi fimmtudag, þar sem liðið freistar þess að tryggja sér sæti á HM í sumar. Aukin heldur er ljóst að Heimi sé ætlað að stýra liðinu á næsta Evrópumóti sem haldið verður sumarið 2028 á Írlandi, Englandi, Skotlandi og Wales.
Great news for Irish football! 🇮🇪
We are delighted to announce that Republic of Ireland Head Coach Heimir Hallgrímsson has committed his future to the FAI by signing a new contract.
Speaking at today’s press conference, Heimir confirmed he has signed a new contract until the… pic.twitter.com/UCEXDifb8r
— Ireland Football ⚽️🇮🇪 (@IrelandFootball) March 19, 2026