Árshátíð FÍV haldin með pompi og prakt
Árshátíð Framhaldsskólans fór fram í Höllinni í gær.
Annika Staff
Annika
Vignisdóttir

Árshátíð Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum fór fram í Höllinni í gær og hún vel sótt. Þema kvöldsins var „Midnight Summer“ og lögðu nemendur mikið upp úr útliti og mættu í litríkum fatnaði sem setti skemmtilegan svip á stemninguna.

Salurinn var einnig skreyttur í anda þemans og var einstaklega fallegur. Veitingar voru í höndum Einsa Kalda líkt og áður og stóðust þær allar væntingar gesta.

Dagskráin var fjölbreytt og skemmtileg, og endaði kvöldið á að Aron Can og Hubbabubba stigu á svið við mikla lukku árshátíðagesta.

Myndasyrpa frá kvöldinu fylgir

Nýjustu fréttir

Er betra að vita en halda?
ÍBV sækir Breiðablik heim í kvöld
Reyktur lax frá Laxey til styrktar ÍBV handbolta
Sunnudagsmorgunn með alþjóðlegum blæ
Um 8000 farþegar með tíu skemmtiferðaskipum
Tvö skemmtiferðaskip í blíðunni í Vestmannaeyjum
Fyrstu spár lofa góðu fyrir Þjóðhátíð
Skiptu 3.000 tonnum af makríl fyrir 1.400 tonn af þorski
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.