Skákmeistarinn krýndur á sunnudag
Sigurjón Þorkelsson og Auðunn Haraldsson með bikarinn. Ljósmynd/aðsend.

Á Skákþingi Vestmannaeyja 2026, sem lauk í lok febrúar sl., urðu þeir Sigurjón Þorkelsson og Auðunn Haraldsson efstir og jafnir með 8 vinninga hvor af níu mögulegum.

Keppendur á Skákþinginu voru tíu talsins. Þeir Sigurjón og Auðunn skáru sig nokkuð úr en í þriðja sæti varð Arnar Sigurmundsson með 6,5 vinninga. Sigurjón hefur unnið Skákþing VM í fjölmörg skipti.

Auðunn gekk til liðs við TV fyrir liðlega einu ári og hefur annast skákkennslu ungmenna í GRV og hjá TV. Ákveðið var að bíða með einvígi þeirra þar til loðnuvertíðinni væri lokið.

Sigurjón og Auðunn munu keppa í þriggja atskáka einvígi sunnudaginn 29. mars kl. 13:30 í skákheimili TV að Heiðarvegi 9.

Tímamörk verða 15 mínútur á hvorn keppanda auk 5 sekúndna fyrir hvern leik og fer einvígið fram samkvæmt reglum TV. Þessi tímamörk eru mjög algeng í atskák.

Á Skákþingi Vestmannaeyja var umhugsunartími 60 mínútur á skák auk 30 sekúndna á leik, sem er nokkuð algengt í keppnisskák.

Reikna má með að einvíginu ljúki á milli kl. 15:00 og 16:00 á sunnudaginn. Verði þeir jafnir að þremur skákum loknum tekur við bráðabani og sá sem vinnur fyrstu skák eftir það verður Skákmeistari Vestmannaeyja 2026.

Áhugafólk er velkomið að mæta í skákheimili TV og fylgjast með keppni þeirra félaga, segir í tilkynningu frá TV.

Nýjustu fréttir

Hingað og þangað um Heimaey
Ágúst Þór stýrir brekkusöngnum
Skákmeistarinn krýndur á sunnudag
Árshátíð FÍV haldin með pompi og prakt
Heimir og Írar úr leik um sæti á HM
Sjötti þáttur af “Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma”
Niðurstaða útboðs vegna uppbyggingar og reksturs heilsuræktar við Íþróttamiðstöð
Fjölmiðlafrumvarp afgreitt úr ríkisstjórn: Tók breytingum eftir samráð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.