Listaverk Ólafs Elíassonar komið á sinn stað
Listaverkið er um 200 til 300 metra við fyrsta afleggjara til hægri þegar ekið er til austurs framhjá Sorpu. Mynd Kristján Óskarsson.

Það var í maí 2024 að Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, skrifuðu undir samning milli ráðuneytisins og Vestmannaeyjabæjar sem tryggir verkefnastyrk vegna aðkomu að listaverki eftir Ólaf Elíasson.

Nú er listaverkið komið og unnið er að því að koma því fyrir á Nýjahrauni, eins og sést á mynd sem Kristján Óskarsson tók í morgun og birti á samfélagsmiðlum.

Í frétt í Eyjafréttum í maí 2024 kom fram að Vestmannaeyjabær hefði fest kaup á sérhönnuðu listaverki eftir Ólaf Elíasson í tilefni þess að 50 ár voru liðin frá goslokum í Heimaey 1973. Hönnun og undirbúningur verksins hófst í kjölfarið og hafði þá staðið yfir í rúmt ár.

Undirritun samnings fór fram undir Eldfelli, þar sem jafnframt var gengið frá samningi við listamanninn, sem tók þátt í gegnum fjarfund. Hann lýsti mikilli tilhlökkun til að snúa aftur til Eyja og hefjast handa.

Listaverkið verður einstakt á heimsvísu og hið eina sinnar tegundar sem tengist eldfjalli með þessum hætti. Það er verkfræðilega flókið og samanstendur af listaverki og gönguleið á Eldfelli. Gestir munu upplifa verkið í gegnum litabreytingar sem taka mið af sólarstöðu og landslagi.

Lilja Dögg sagði við undirritun að ekki kæmi á óvart að einn fremsti listamaður landsins velji Vestmannaeyjar fyrir svo metnaðarfullt verkefni og taldi það munu verða mikið aðdráttarafl á heimsvísu.

Íris Róbertsdóttir lagði áherslu á gildi þess að tengja list og menningu við landslag bæjarins á þessum tímamótum. Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar, lýsti einnig mikilli tilhlökkun og von um að fyrsti áfangi verksins yrði tilbúinn innan árs, en raunin varð tvö ár.

 

Nýjustu fréttir

Framkvæmdir hafnar í Miðgerði
Landa fyrir austan
Allison Clark tryggði ÍBV jafntefli með marki í blálokin
Staða mála hjá Herjólfi
Embla Harðardóttir sleit krossband gegn FH
Rannsóknarhola Eyjaganga komin á beinu brautina á ný
Herjólfur með sjö ferðir til Landeyjahafnar í dag
Geta Eyjastúlkur haldið pressunni á Breiðablik?
viðburðir
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.