Andri verður ekkert með í einvíginu gegn KA
Andri Erlingsson í leik gegn KA fyrr í vetur. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Andri Erlingsson, leikmaður ÍBV í handbolta, verður ekki með ÍBV gegn KA á sunnudaginn í einvíginu milli þessara liða í 8-liða úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í Olís deild karla. Andri meiddist í seinni hálfleik gegn Fram í næst síðustu umferð Olís deildarinnar og missti af lokaumferðinni. Hann var ekki með ÍBV í fyrsta leiknum gegn KA á miðvikudaginn síðasta. 

Leikstjórnandinn efnilegi sagði í samtali við handkastið ,,Staðan á mér er ekki frábær. Ég er með beinmar og sködduð liðbönd í ökklanum þannig það er alveg smá í að ég megi byrja að æfa aftur”. 

ÍBV mætir KA á sunnudaginn og þarf nauðsynlega á sigri að halda. Ef ÍBV tapar þá er Andri búinn að leika sinn síðasta leik fyrir ÍBV í bili en hann heldur til Svíþjóðar í sumar og mun leika með Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni. 

Leikur KA og ÍBV í 8-liða úrslitum fer fram á sunnudaginn kl. 15:00 á Akureyri.

Nýjustu fréttir

Framkvæmdir hafnar í Miðgerði
Landa fyrir austan
Allison Clark tryggði ÍBV jafntefli með marki í blálokin
Staða mála hjá Herjólfi
Embla Harðardóttir sleit krossband gegn FH
Rannsóknarhola Eyjaganga komin á beinu brautina á ný
Herjólfur með sjö ferðir til Landeyjahafnar í dag
Geta Eyjastúlkur haldið pressunni á Breiðablik?
viðburðir
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.