Vestmannaeyjar eru á margan hátt einstakt samfélag. Öryggið, nálægðin og samheldnin gerir bæinn okkar að einum besta staðnum á landinu til að ala upp börn. Við megum þó ekki sofna á verðinum. Til þess að halda áfram að vera eftirsóknarverður kostur fyrir ungt fólk og fjölskyldur, þurfum við að þora að gera enn betur. Sem frambjóðandi í 9. sæti Eyjalistans vil ég leggja áherslu á að fjölskyldumál séu ávallt í forgangi við ákvarðanatöku í bæjarstjórn.
Eitt af stóru hagsmunamálum barnafjölskyldna í Eyjum er aðgengi að sérhæfðri þjónustu. Alltof margir foreldrar þurfa í dag að leggja á sig kostnaðarsöm og tímafrek ferðalög „upp á land“ til að sækja þjónustu talmeinafræðinga, barnasálfræðinga eða annarra sérfræðinga. Sem frambjóðandi hjá Eyjalistanum vil ég leita allra leiða til að færa þessa þjónustu nær okkur , hvort sem það er með því að fjölga heimsóknum sérfræðinga eða efla fjarþjónustu innan stofnana bæjarins. Börn og ungmenni eiga að fá aðstoð í sínu heimaumhverfi.
Það er grundvallarkrafa að leikskólamál séu í lagi. Við verðum að vinna markvisst að því að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla svo foreldrar geti snúið aftur til starfa með öryggiskennd. Ég tel því heilla skref að nú er verið að auglýsa eftir dagforeldrum á ný en það er lausn sem leysir biðlista inn á leikskóla á meðan unnið er að uppbyggingu stærri leikskóla í Vestmannaeyjum. Næsta bæjarstjórn verður því að halda áfram vel utan um þessi mál svo foreldrar gangi örugg aftur inn á vinnumarkaðinn að loknu fæðingarorlofi.
Samhliða því þurfum við að huga að tómstundum barnanna okkar. Í Vestmannaeyjum er frábært íþróttastarf, en við þurfum einnig að hlúa að þeim börnum sem hafa áhuga á listum, tækni og annars konar skapandi starfi. Samfélag fyrir alla er samfélag þar sem hvert barn finnur sinn vettvang.
Fjölskyldan er grunnurinn að öflugu samfélagi. Með því að hlusta á raddir foreldra og mæta þörfum barna okkar, gerum við Vestmannaeyjar að enn betri stað til að búa á. Ég hvet ykkur til að kynna ykkur áherslur okkar í Eyjalistanum, fyrir fjölskyldurnar, fyrir framtíðina og fyrir Eyjarnar okkar.
Þorsteinn Ívar Þorsteinsson
Höfundur skipar 9. sæti lista Eyjalistans fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í Vestmannaeyjum.