„Gengið eins og í sögu”
eyjarn
Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergur VE lönduðu báðir í Vestmannaeyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ísfisktogarar Bergs – Hugins í Vestmannaeyjum, Bergey VE og Vestmannaey VE, hafa þrisvar sinnum landað fullfermi á innan við viku. Fyrst lönduðu þeir í Þorlákshöfn, síðan í Grindavík og í gær og fyrradag var landað í heimahöfn í Vestmannaeyjum. Heimasíða Síldarvinnslunnar greinir frá. Þá voru skipstjóranir spurðir hvort menn væru ekki sáttir við aflabrögðin.

Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergey, sagði að ekki væri annað hægt en að vera sáttur. „Við lönduðum í Eyjum á mánudagskvöld og aflinn var nær eingöngu ýsa. Það var dálítið af ufsa og þorski með. Við byrjuðum á Selvogsbankanum og tókum þrjú hol en síðan hófst hrygningarstopp þar á miðnætti á laugardag. Vegna stoppsins færðum við okkur austur eftir og tókum tvö hol á Síðugrunni og loks tvö á Öræfagrunni og þar var skipið fyllt. Túrinn var stuttur eins og aðrir túrar að undanförnu en töluverður tími fór í siglingar að þessu sinni. Það er ekki hægt að vera annað en ánægður með eflabrögðin að undanförnu,” sagði Ragnar .

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, var einnig sáttur við veiðina síðustu daga. „Þetta er búin að vera hörkuveiði og ekki hægt að kvarta undan neinu. Við lönduðum fullfermi í Eyjum í gær og aflinn var mest ýsa. Þetta var fínasti fiskur. Við hófum veiðina á Selvogsbankanum en færðum okkur síðan austar vegna hrygningarstoppsins og kláruðum túinn á Síðugrunni og Öræfagrunni. Þetta gekk vel og veðrið var þokkalegt. Það var kaldi til að byrja með en síðan ljómandi veður. Það er ekki hægt að vera annað en sáttur við aflabrögðin upp á síðkastið. Þetta hefur allt saman gengið eins og í sögu,” sagði Birgir Þór.

Bergey og Vestmannaey munu halda til veiða á ný á morgun, segir að endingu í fréttinni.

Nýjustu fréttir

Vonast til að dýpkun hefjist á fimmtudag
Ung eyjamær sigraði upplestrarkeppnina
Fiskeldið á fleygiferð í byrjun árs
„Gengið eins og í sögu”
Spurt og svarað: Jóhann Ingi frá Miðflokknum
Undanúrslitin hefjast – ÍBV mætir Haukum í fyrsta leik
Gleðilegt sumar
Lundinn sestur upp
viðburðir
Andres Stefan Mbl
15. apríl 2026
20:00
Borgarafundur í Höllinni
Höllin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.