Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Léttleiki, litir og þægindi eru ríkjandi
Svava Tara eigandi tískuvöruverslunarinnar Sölku

Nú þegar vorið er gengið í garð og sumarið á næsta leyti er ekki seinna vænna en að fara að huga að sumarklæðnaði. Við heyrðum í Svövu Töru, eiganda tískuvöruverslunarinnar Sölku, sem fór yfir helstu strauma og stefnur fyrir vor og sumar með Eyjafréttum.

„Í sumar verða buxur, pils og skyrtur eða bolir áberandi. Við erum enn að einhverju leyti að hvíla kjólana, einhverra hluta vegna,“ segir Svava. Blúnda heldur áfram að vera vinsæl, og hör bætir hún við.

Litirnir sem munu einkenna sumarið eru mjúkir og léttir. „Litirnir sem verða mest áberandi eru ljósblár, ljósbleikur, gulur og brúnn, og það er hægt að leika sér með að blanda þessum litum saman.“

Sniðið helst þægilegt og afslappað. „Við erum enn í víðum eða beinum buxum og oft með stuttar peysur við.“ Svokallaðar balloon-buxur eru einnig að koma sterkar inn. Þá verða fylgihlutir áberandi, sérstaklega klútar. „Klútar á töskur, um hálsinn og/eða yfir buxur.“

Aðspurð hvort eitthvað hafi komið sér á óvart varðandi sumartískuna segir Svava að það hafi komið sér á óvart að kjólar væru ekki að koma meira inn, en að öðru leyti hafi ekkert komið á óvart.

Það sem Svövu þykir skemmtilegast við sumartískuna eru litirnir og léttleikinn. „Sumartískan er alltaf skemmtilegust – meiri litir og léttari klæðnaður. Góðar og léttar hörbuxur ættu allar konur að eiga, þægilegar og flottar. Svo er hvítur stuttermabolur alltaf skyldueign á sumrin.“

Fylgihlutir verða áberandi í sumar og mikið verður um klúta á töskur, um hálsinn og/eða yfir buxur

 

Nýjustu fréttir

Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Við þurfum að hætta þessum bútasaumi
Úr fótbolta yfir í hlaup
Aníta Sif er Eyjamaður mánaðarins
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.