Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Jóhann Halldórsson. Mynd/Óskar Pétur

Aðsend grein

Jóhann Halldórsson

Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?

Ég er þá ekki að tala um að framkvæmdir við Eyjagöng séu loksins hafnar – verkefni sem hefur fengið jákvæða umræðu og líklega er varla til sá Eyjamaður sem ekki krossleggur fingur og vonar að bættar samgöngur verði að veruleika.

Um síðustu helgi hélt Hallgrímur Steinsson, einn af stofnendum og rekstrarstjóri hjá Laxey, erindi. Ég verð að viðurkenna að þar kom margt áhugavert fram sem ég tel að almenningur sé ekki að átta sig nægilega á.

Þeir sem þekkja Halla vita að þar fer vandaður og málefnalegur maður sem fer sparlega með yfirlýsingar. „Sigurvegari í Morfís“ er kannski ekki fyrsta lýsingin sem manni dettur í hug þegar maður hlustar á hann í ræðupúlti – enda einkennist hann af mikilli hógværð.

Laxey er nú að klára frekari uppbyggingu á stórseiðaframleiðslu og hefja byggingu nýrrar seiðaeldisstöðvar. Það kemur kannski ekki á óvart þegar haft er í huga að, samkvæmt Halla, eru aðstæður og lega fyrirtækisins með þeim bestu sem þekkjast í heiminum. Framleiðsla og flutningar eru þar af leiðandi á heimsmælikvarða.

Sem dæmi má nefna að einungis örfáir fiskar af 110.000 dóu við flutning frá eldisstöð yfir í brunnbát til útflutnings.

Til samanburðar hafa aðrir aðilar reynt sambærilegar útfærslur, en þar felast oft miklir flutningar í tankbílum vegna legu áður en dælt er um borð í brunnbát. Slíkar aðgerðir geta leitt til umtalsverðs affalls, sem getur numið mörgum prósentum, með tilheyrandi auknum kostnaði.

Þessi styrkur endurspeglast meðal annars í samningi sem undirritaður var í vikunni milli Laxey og Akva Group um uppbyggingu nýrrar seiðaeldisstöðvar. Til að setja það í samhengi er samningurinn metinn á um fjóra milljarða króna – og það er eingöngu tækjakostnaðurinn.

Það sem í upphafi var talið ókostur við uppbyggingu í Vestmannaeyjum hefur nú snúist við og orðið að einstökum styrkleika.

Vestmannaeyjar og Laxey hafa þannig þróast í það sem kalla mætti „kastaladíki“ (e. moat), hugtak sem fjárfestirinn Warren Buffett hefur lagt mikla áherslu á sem lykilþátt í fjárfestingarákvörðunum.

Það er því bæði eðlilegt og mikil viðurkenning fyrir Laxey og Vestmannaeyjar að stærsti fjárfestingabanki í sjávarútvegi leiði nú fjármögnunarlotu fyrirtækisins. Gangi hún eftir má telja líklegt að hér sé um að ræða einhverjar stærstu viðskiptafréttir síðustu ára í Vestmannaeyjum.

Nýjustu fréttir

Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Við þurfum að hætta þessum bútasaumi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.