Kjördagur er runnin upp. Í dag göngum við Eyjamenn að kjörborðinu og veljum okkur þá fulltrúa sem við viljum hafa við stjórnvöl bæjarins næstu fjögur árin. Kosningarétturinn er okkur mikilvægur og því hvet ég alla til að nýta kosningaréttinn, mæta á kjörstað og greiða atkvæði. Hvert atkvæði skiptir máli þegar kemur að því að móta framtíð Vestmannaeyja.
Við höfum sett mörg atriði í stefnuskránna en mikilvægasta loforðið sem við gefum er að við munum leggja okkur öll fram við að gæta hagsmuna Vestmannaeyja og vinna vel að þeim málum sem til hagsbóta eru fyrir Eyjarnar. Við munum beita okkur af öllu afli í hagsmunamálum okkar gagnvart ríkinu og við munum vinna vel fyrir Vestmannaeyjar og alla Vestmannaeyinga, því við vitum að við erum Sterkari saman.
Við treystum því að þið eigið samleið með okkur og setjið X við D í dag.
Eyþór Harðarson
Oddviti D-lista Sjálfstæðisflokks.