Gleðilegan kjördag kæru Vestmannaeyingar!
Íris Róbertsdóttir

Aðsend grein

Íris Róbertsdóttir

Í dag tökum við ákvörðun um næstu fjögur ár; um hvernig við viljum byggja upp samfélagið okkar, verja hagsmuni Eyjanna og nýta þau tækifæri sem framundan eru.

Það hefur verið mér mikill heiður að njóta þess trausts að taka þátt í uppbyggingu samfélagsins sem bæjarstjóri síðustu átta ár. Þessi tími hefur kennt mér eitt afdráttarlaust – þegar við stöndum saman þá náum við árangri.

Við búum í einstöku samfélagi. Hér er kraftmikið fólk sem hefur ítrekað sýnt að við getum tekist á við áskoranir, hvort sem það er í gleði eða sorg. Þessi samstaða er okkar styrkur, hinn sanni Eyjakraftur og Eyjahjarta.

Það eru margir hæfir einstaklingar að bjóða sig fram hér í Eyjum sem vilja leggja sitt af mörkum fyrir samfélagið en valið er ykkar kjósenda í dag. Ég er fullviss um að það öfluga fólk sem skipar lista Sjálfstæðisflokksins, og vill vinna að brýnum hagsmunum okkar allra, er besti kosturinn. Þar fer saman fjölbreytt reynsla, þekking og ábyrgð.

Ég er innilega þakklát fyrir það traust sem mér var sýnt sem bæjarstjóraefni listans og er sannfærð um að reynsla mín og þekking muni nýtast vel í þágu íbúa í þeim verkefnum sem fram undan eru, stórum sem smáum.

Með elju og samstöðu er ljóst að framtíðin getur verið björt.

Ég hvet þig kæri kjósandi til að nýta kosningaréttinn og setja X við D í dag.

 Við erum sterkari saman.

 

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri

Nýjustu fréttir

Gleðilegan kjördag kæru Vestmannaeyingar!
Við gefum loforð og efnum það
Lokahóf handboltans fór fram í gærkvöldi
Lengi lifi lýðræði á Íslandi!
Veljum reynsluna
Kjósum með framtíðina í huga
Kona fer í framboð
Kjósum með hjartanu!
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.