Sjómannskonur: Guðbjörg Erla
Guðbjörg Erla og Ágúst, ásamt börnum sínum Emilíönu Erlu, Sveini Jörundi og Rebekku.
Annika Staff
Annika
Vignisdóttir

Fjölskylda? Ágúst Halldórsson er maðurinn minn og við eigum þrjú börn. Þau eru Emilíana Erla 19 ára, Sveinn Jörundur 13 ára og Rebekka 9 ára.

Hversu lengi hefur þú verið sjómannsfrú? Á okkar 21 árum saman þá hefur Ágúst verið sjómaður í ca 16 ár myndi ég áætla.

Á hvaða skipi er maki þinn? Hann er vélstjóri á Heimaey VE 1.

Kynnist þið þegar maki er á sjó? Við vorum bæði í FÍV þegar við kynntumst en hann fór fljótlega á sjóinn.

Hefur maki þinn alla ykkar tíð verið á sjó? Nei, við fluttum í bæinn og fórum bæði í skóla. Fljótlega eftir að hann útskrifaðist fór hann aftur á sjóinn og við Emilíana Erla bjuggum þá í bænum. Þegar annað barnið okkar var á leiðinni tókum við þá frábæru hugmynd að flytja aftur heim, enda leið alltof langt á milli hittinga þegar hann réri frá Eyjum og okkur langaði að ala börnin okkar upp í Eyjum og leyfa þeim að upplifa það sama og við gerðum sem börn. Þegar yngsta barnið okkar var að verða tveggja ára (en hann hélt að hún væri að verða þriggja ára) þá taldi ég nú best að hann kæmi í land í einhvern tíma og myndi a.m.k átta sig á aldri barnanna sem hann svo gerði. Hann fór þá að vinna á Herjólfi og breytti síðan alveg um stefnu þegar hann fór að kenna í FÍV. Þegar heimilislífið fór aðeins að róast og börnin orðin eldri þá fór hann aftur á sjóinn þar sem hann unir sér best.

Hvernig hefur gengið að samræma sjómennsku og fjölskyldulíf? Það hefur gengið mjög vel. Auðvitað koma tímabil sem eru erfiðari en önnur en þetta venst bara og börnin þekkja lítið annað en að pabbi þeirra sé sjómaður. Við erum heppin að vera með allt okkar fólk í Eyjum sem hefur létt undir þegar mikið er að gera. Ég ólst upp við að pabbi minn var sjómaður þannig að þessa samræmingu hef ég alltaf þekkt og hef svo sem bara fundist hún eðlileg þar sem ég þekki ekkert annað.

Helstu kostir sjómennskunnar? Kostirnir eru stoppin á milli og skiptikerfið sem Ágúst er í. Þegar hann kemur í land og skipið fer á sjó þá er hann í algjöru fríi og sér þá um heimilið þar sem oft á tíðum hefur verið mikið að gera hjá mér í vinnu á sama tíma og hann er á vertíðum. Á meðan ég fer í vinnu og börnin í skólann þá sér hann algjörlega um heimilið og hann er ekkert eðlilega góður í þvottahúsinu, mæli með að þið heyrið í honum ef ykkur vantar ráð þar.

Helstu gallar sjómennskunnar? Það er þessi óvissa hvenær von er á skipinu í land en það fer allt eftir veiðum og veðri. En eins og ég nefndi áðan þá venst þetta og reyni ég að plana sem minnst þar sem viðveru hans er óskað á meðan ég veit að hann er á sjó. Ég og börnin höfum bara alltaf haldið okkar striki og höldum upp á afmæli og önnur tímamót ef það ber upp á meðan hann er á sjó. Innst inni grunar mér nú að hann sé feginn að missa af öllum þessum barnaafmælum sem hafa verið haldin á meðan hann er á sjó.

Eruð þið með hefð um sjómannahelgina? Í tvö skipti höfum við fagnað helginni erlendis með góðum vinum en yfirleitt er dagskráin þannig að við höfum farið út að borða á föstudeginum með vinum okkar og svo á tónleika í Höllinni, á laugardeginum fögnum við með áhöfninni og sunnudaginn á Ágúst skuldlaust þar sem þetta er nú hans helgi. Krökkunum finnst þessi helgi vera mjög skemmtileg enda mikið um að vera fyrir þau, Sjómannadagsráð á hrós skilið fyrir að gera þessa helgi svona flotta fyrir alla bæjarbúa.

Eitthvað að lokum? Til hamingju með daginn kæru sjómenn og njótið sjómannadagshelgarinnar, þar sem þetta er ykkar helgi. Skál!

Nýjustu fréttir

Sjómannskonur: Guðbjörg Erla
Vel heppnuð fimleikasýning
Brot af því besta úr viðtölum Stjána á Emmunni
Dagur hlaut háttvísisverðlaun HDSÍ
Krakkarnir á Víkinni fögnuðu útskrift
Sjómennska, Surtsey og sveitarstjórn í nýjum Eyjafréttum
Vorsýning fimleikafélagsins í dag
Sandra besti sóknarmaður Olís deildar kvenna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.