Landað í Grindavík og í Eyjum
Eyjarnar í heimahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Eyjatogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE héldu til veiða um hádegi á mánudag að lokinni sjómnnadagshelgi. Skipin lönduðu í gær að loknum örstuttum túr, Vestmannaey í Grindavík og Bergey í Eyjum.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, segir í samtali við vefsíðu Síldarvinnslunnar að aflinn hjá þeim hefði verið um 50 tonn. „Við vorum rétt rúman sólarhring að veiðum þannig að það fiskaðist ágætlega. Við vorum á Pétursey en tókum eitt hol í lokin á Broadwey vestur af Eyjum. Við þurftum að taka stuttan túr vegna þess að það vantaði fisk í vinnsluna. Aflinn var mest þorskur og síðan ýsa og aðrar tegundir með. Það var fínasta veður í þessum túr, austan gjóla sem truflaði ekki nokkurn mann,” sagði Birgir Þór.

Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergey, var einnig sáttur við veiðina. „Við byrjuðum á Pétursey og þar var góð þorskveiði. Við áttum að leggja áherslu á annað en þorsk og því leituðum við að ýsu og ufsa með heldur takmörkuðum árangri. Ufsaleitin fór fram í Reynisdýpinu og á Kötlugrunni. Aflinn sem við komum með að landi var um 60 tonn og um er að ræða hinn fallegasta fisk sem hentar örugglega vel í vinnsluna,” sagði Ragnar Waage.

Nýjustu fréttir

Lokadagur TM-mótsins: Gleði, keppni og ógleymanlegar minningar
Vestmannaeyjabær: Ráðið í stöðu deildarstjóra launadeildar
Tæplega 2.000 farþegar nýttu áætlunarflugið
Rakel býður upp á Reikiheilun í Eyjum
ÍBV sækir Þrótt heim í dag
Viðgerð Herjólfs dregst fram í júlí
Standa þarf vörð um hafrannsóknir
Stórseiðahús reist á aðeins tíu mánuðum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.