Standa þarf vörð um hafrannsóknir
Ráðgjöf dregst saman fyrir helstu nytjastofna :: Tilkynning frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi
Sjonum DSC 7447 Min
Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Hafrannsóknastofnun birti í morgun ráðgjöf fyrir fiskveiðiárið 2026/2027. Niðurstöðurnar fela í sér lækkun í ráðgjöf fyrir nokkrar af mikilvægustu nytjategundum okkar, þar á meðal þorsk, ýsu, ufsa og síld.

Í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar lækkar ráðlagður afli þorsks um 1% og verður 201.674 tonn á næsta fiskveiðiári. Þá lækkar ráðgjöf fyrir ýsu um 20% í 63.206 tonn, fyrir ufsa um 16% í 49.887 tonn og fyrir sumargotssíld um 23% í 80.307 tonn. Ráðgjöf fyrir steinbít lækkar jafnframt um 8% í 8.641 tonn. Áfram er lagt til að engar veiðar verði heimilaðar á djúpkarfa.

Hækkanir í nokkrum tegundum

Þrátt fyrir samdrátt í ráðgjöf stærstu nytjastofnanna eru jákvæð teikn í ráðgjöf nokkurra annarra stofna. Ráðgjöf fyrir löngu og keilu hækkar um 21% milli ára og ráðgjöf fyrir gullkarfa hækkar um 4,8%. Þá hækkar ráðgjöf fyrir skarkola um 1% og fyrir grálúðu um 0,4%. Mest hækkar ráðgjöf fyrir blálöngu, úr 307 tonnum í 1.898 tonn, sem jafngildir 522% hækkun milli ára. Nýlega hefur verið tekin upp ný stofnmatsaðferð fyrir blálöngu.

Öflugar hafrannsóknir lykilatriði

Áfram þarf að byggja ákvarðanir um nýtingu fiskistofna á niðurstöðum vísinda enda er það forsenda sjálfbærra fiskveiða og alþjóðlegs trausts á íslenskum sjávarafurðum. Niðurstöðurnar undirstrika enn á ný mikilvægi öflugra og vandaðra hafrannsókna. Óvissa um stöðu stofna leiðir óhjákvæmilega til varkárari nýtingar og getur haft veruleg áhrif á verðmætasköpun í sjávarútvegi og þjóðarbúinu öllu. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hvetja stjórnvöld því til að standa vörð um hafrannsóknir og tryggja að nauðsynlegir fjármunir séu til staðar fyrir rannsóknir og vöktun nytjastofna. Á því hefur orðið misbrestur og úr því þarf að bæta, segir í tilkynningu frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.

Nýjustu fréttir

Viðgerð Herjólfs dregst fram í júlí
Standa þarf vörð um hafrannsóknir
Stórseiðahús reist á aðeins tíu mánuðum
Hafró leggur til minni þorskkvóta en mikla aukningu í loðnu
Leiðin liggur á Eyjuna fögru
Enn að eftir 40 ár sem blaðamaður
Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar
Sjómannakaffið – ÍBV-stelpurnar tóku við keflinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.