ÍBV sækir Þrótt heim á AVIS-völlinn í Laugardal í dag þegar 8. umferð Bestu deildar kvenna fer fram. Flautað verður til leiks klukkan 14:00.
Leikurinn er afar mikilvægur fyrir bæði lið, sem eru í hópi þeirra sem berjast um efri sæti deildarinnar. ÍBV situr í 3. sæti með 13 stig eftir sjö leiki en Þróttur er skammt undan í 4. sæti með 12 stig. Sigur myndi því styrkja stöðu Eyjakvenna í toppbaráttunni.
ÍBV kemur til leiks eftir 2-0 tap gegn Stjörnunni í síðustu umferð. Þrátt fyrir tapið er staða Eyjaliðsins áfram sterk og með sigri í dag gæti liðið fest sig enn betur í sessi meðal efstu liða deildarinnar.
Þróttur vann hins vegar mikilvægan sigur í síðustu umferð á Valskonum og munu þær mæta til leiks fullar sjálfstrausts á heimavelli.
Breiðablik leiðir deildina með 18 stig og FH er í öðru sæti með 16 stig. Þar á eftir kemur ÍBV með 13 stig og Þróttur með 12. Því gæti leikurinn í Laugardal haft talsverð áhrif á stöðuna í efri hluta deildarinnar þegar nær dregur miðbik tímabils.
Kl. 14:00
Kl. 16:15