Þétt setinn skóli þegar haustönn hefst
FIV 20201012 173231
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Innritun fyrir komandi skólaár í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum er lokið og ljóst er að skólinn verður þétt setinn þegar kennsla hefst í ágúst. Mikill áhugi hefur verið á námi við skólann og fagna stjórnendur þeirri þróun.

Að þessu sinni reyndist ekki unnt að veita öllum umsækjendum skólavist. Þeir sem ekki fengu inni en hafa áfram áhuga á námi við skólann geta óskað eftir að vera settir á biðlista með því að senda tölvupóst á skrifstofu skólans.

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum býður upp á fjölbreytt námsframboð, bæði í bók- og starfsnámi. Lögð er áhersla á gott námsumhverfi, persónulega þjónustu, stuðning við nemendur og sterka tengingu við samfélagið í Vestmannaeyjum.

Í tilkynningu frá skólanum kemur fram að FÍV gegni mikilvægu hlutverki í samfélaginu, bæði sem menntastofnun og vettvangur fyrir áframhaldandi uppbyggingu og tækifæri ungs fólks í Eyjum.

Næstu vikur verður unnið að stundatöflugerð, lokafrágangi námsvals og undirbúningi fyrir móttöku nemenda í ágúst. Sérstök áhersla verður lögð á að taka vel á móti nýnemum og tryggja að allir nemendur fái þær upplýsingar og þjónustu sem þeir þurfa við upphaf skólaársins.

Nánari upplýsingar um skólasetningu, stundatöflur og móttöku nemenda verða birtar á heimasíðu skólans þegar nær dregur skólabyrjun.

Nýjustu fréttir

Boða átak vegna gáma og númerslausra bíla
Tvær ferðir til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjakonur vilja styrkja stöðu sína í þriðja sæti
Eyjamenn leika síðasta heimaleik tímabilsins í dag
Siglingar til Landeyjahafnar háðar kjöraðstæðum
Alanys semur við ÍBV til tveggja ára
Bein útsending: Staða ferðaþjónustunnar rædd við þingmenn
Skipulag við Strandveg 44 til bæjarstjórnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.