Kristrún ánægð með heimsókn til Vestmannaeyja
Uppfærð frétt.
Kristrún og Haraldur með borkjarnana góðu. Mynd Óskar Pétur.

Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra er í heimsókn í Vestmannaeyjum og hefur heimsótt fjölda staða. Í gær var hún með opinn fund og snæddi kvöldverð á Næs hjá Gísla Matthíasi. Í morgun átti hún fund með bæjarstjórn og starfsfólki í Ráðhúsinu. Þaðan lá leiðin í Laxey þar sem hún kynnti sér uppbyggingu fyrirtækisins.

Kristrún fór einnig inn á Eiði þar sem Eyjagöng hafa staðið fyrir borun rannsóknarholu. Þar hitti þar Harald Pálsson, framkvæmdastjóra Eyjaganga sem stýrði verkefninu. Borun á Eiðinu er nú lokið og næsta skref er að bora rannsóknarholu við hinn enda fyrirhugaðra ganga, á Landeyjasandi. Á myndinni halda Kristrún og Haraldur á borkjarna sem tekinn var úr rannsóknarholunni.

„Það er alltaf frábært að koma til Vestmannaeyja og Eyjamenn tóku eins og venjulega vel á móti okkur. Ég byrjaði ferðina á opnum fundi á Vigtinni bakhúsi í gærkvöldi, þar sem við Ása Berglind og Víðir áttum hreinskiptið samtal við fundargesti um m.a. samgöngur, menntamál og atvinnumál,“ segir Kristrún.

„Ríkisstjórnin kynnti í vor nýja atvinnustefnu fyrir Ísland, sem m.a. leggur áherslu á háframleiðnigreinar og stórfjárfestingar á landsbyggðinni. Í Vestmannaeyjum er mikil uppbygging í gangi í einmitt þessum anda, knúin áfram af drífandi og stórhuga fólki, og það hefur verið ákaflega gaman að fá kynningu á þessu í dag.“

 

Nýjustu fréttir

Tvær ferðir til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjakonur vilja styrkja stöðu sína í þriðja sæti
Eyjamenn leika síðasta heimaleik tímabilsins í dag
Siglingar til Landeyjahafnar háðar kjöraðstæðum
Alanys semur við ÍBV til tveggja ára
Bein útsending: Staða ferðaþjónustunnar rædd við þingmenn
Skipulag við Strandveg 44 til bæjarstjórnar
Skjöldur í þriðja sinn 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.