Tónlistarunnendur í Vestmannaeyjum fá einstakt tækifæri laugardaginn 4. júlí kl. 17.00 þegar þrír af fremstu óperusöngvurum landsins stíga á svið í Eldheimum ásamt píanóleikaranum Helgu Bryndísi Magnúsdóttur. Á efnisskránni verða þekkt ítölsk og íslensk sönglög og annað létt og skemmtilegt klassískt efni flutt af listafólki sem hefur getið sér gott orð bæði hérlendis og erlendis.
Fram koma bassasöngvarinn Kristinn Sigmundsson, sem er einn virtasti söngvari Íslands fyrr og síðar, tenórarnir Gissur Páll Gissurarson og Kolbeinn Jón Ketilsson, auk Helgu Bryndísar Magnúsdóttur, sem er meðal fremstu píanóleikara landsins.
Glæsilegir alþjóðlegir ferlar
Kristinn Sigmundsson á að baki glæsilegan alþjóðlegan feril og hefur um áratugaskeið komið fram á stærstu óperusviðum heims. Kolbeinn Jón Ketilsson hefur einnig starfað við mörg af virtustu óperuhúsum Evrópu og komið reglulega fram á tónleikum og í óperuuppfærslum hér á landi.
Gissur Páll Gissurarson hefur á undanförnum árum skipað sér í hóp fremstu tenóra landsins og vakið athygli fyrir söng sinn í óperum og á fjölmörgum tónleikum, meðal annars á vinsælum jólatónleikum Björgvins Halldórssonar.
Eyjatengingin sterk
Vestmanneyingar eiga sérstaka tengingu við tónleikana, því bæði Helga Bryndís Magnúsdóttir og Gissur Páll Gissurarson ólust upp í Eyjum og hlakka til að koma heim og gleðja heimafólk með tónlist sinni.
Að sögn Kolbeins Jóns Ketilssonar kviknaði hugmyndin að tónleikunum af löngun flytjendanna til að færa Eyjamönnum vandaða og metnaðarfulla tónlistarupplifun.
„Okkur langaði að koma saman og halda glæsilega tónleika í Vestmannaeyjum. Það verður sannkölluð hátíðarstund þar sem áheyrendur fá að njóta fjölbreyttrar dagskrár með aríum, sönglögum og öðrum sígildum perlum. Við hlökkum öll mikið til að syngja fyrir Eyjamenn,“ segir Kolbeinn.