Valur kemur til Eyja eftir viðburðaríka viku
Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

ÍBV tekur á móti Val á Hásteinsvelli í dag. Flautað verður til leiks klukkan 16:00 og stefna Eyjamenn á að halda áfram góðu gengi sínu í Bestu deild karla.

Eyjamenn fara inn í leikinn í 9. sæti deildarinnar með 12 stig eftir tólf leiki. Í síðustu umferð gerði ÍBV 1:1 jafntefli við FH í Kaplakrika og hefur nú tekið tíu stig úr síðustu fjórum leikjum. Liðið hefur því verið á góðri siglingu eftir erfiða byrjun á tímabilinu.

Valur er í 5. sæti deildarinnar með 19 stig, en hefur leikið einum leik meira en Eyjamenn. Liðið vann Þór 4:2 í síðustu umferð en engu að síður urðu breytingar á þjálfaramálum í vikunni þegar félagið ákvað að segja Eyjamanninum Hermanni Hreiðarssyni upp sem þjálfara meistaraflokks karla. Chris Brazell, aðstoðarþjálfari liðsins, mun stýra Valsmönnum út tímabilið.

Valur hafði betur, 2:1, í fyrri viðureign liðanna á tímabilinu og eiga Eyjamenn því harma að hefna á heimavelli í dag. Líkt og áður segir hefst leikurinn klukkan 16.00 á Hásteinsvelli. Einn annar leikur fer fram í Bestu deild karla í dag en þar tekur ÍA á móti Breiðabliki. Sá leikur hefst klukkan 14.00.

Nýjustu fréttir

Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Mikill spenningur fyrir komandi tímabili
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.