Eldheimar fylltust af tónlist, hlýju og miklum tilfinningum á föstudaginn þegar Guðrún Erlingsdóttir hélt útgáfutónleika sína á Goslokahátíð og flutti nýju plötuna Sólarlag í heild sinni í fyrsta skipti. Tónleikarnir voru lokapunktur sex mánaða vinnu við plötuna og voru meðal þeirra menningarviðburða sem mesta athygli vöktu á hátíðinni.
„Plötuútgáfan hefur verið eitt stórt ævintýri hjá okkur Gylfa. Við tókum strax þá ákvörðun að gera þetta saman og hafa gaman af öllu ferlinu. Það tókst,“ sagði Guðrún í aðdraganda tónleikanna og orð hennar endurspegluðust í þeirri hlýju og gleði sem einkenndi kvöldið.
Á sviðinu komu fram söngvarar sem sungu á plötunni ásamt Bandinu hennar Rúnu, sem skipað er Sigurgeiri Sigmundssyni, Birgi Nielsen, Dúna Geirssyni og Þóri Ólafssyni. Flutningurinn var fjölbreyttur og vandaður og lög plötunnar nutu sín vel í lifandi útsetningum.
Sérstakan svip á tónleikana setti að margir flytjendanna eiga rætur að rekja til Vestmannaeyja. Auk Guðrúnar komu meðal annars fram Sísí Ástþórsdóttir, Jóhanna Björk Gylfadóttir og Gugga Lísa, ásamt Tómasi Guðmundssyni, Drífu Nadíu Thoroddsen og Kolbrúnu Shalini Árnadóttur.
Það sem stóð upp úr var einlægðin sem einkenndi bæði tónlistarflutninginn og frásagnir Guðrúnar á milli laga. Hún sagði frá tilurð hvers lags og sögunni sem þar bjó að baki. Lögin og textarnir voru öll eftir hana og endurspegluðu reynslu hennar, fjölskyldulíf, ást, von og trú.
Meginþemu plötunnar voru fjölskyldan, samband hennar og eiginmannsins Gylfa Sigurðssonar og sterk trú á Guð. Í nokkrum laganna söng Guðrún Guði lof af einlægni og án nokkurrar feimni sem gaf plötunni persónulegan og sérstakan blæ.
Guðrún notaði einnig tækifærið til að þakka þeim sem stóðu með henni á þessu ferðalagi. Hún talaði af mikilli hlýju um Gylfa, sem hafði stutt hana í gegnum þykkt og þunnt, og þakkaði börnum þeirra fyrir stuðninginn. Þá færði hún öllum sem komu að verkefninu sérstakar þakkir, ekki síst Sigurgeiri Sigmundssyni, hljómsveitarstjóra, sem útsetti öll lög plötunnar.
Útgáfutónleikarnir mörkuðu tímamót á tónlistarferli Guðrúnar. Sólarlag er fyrsta plata hennar með frumsömdum lögum og sýndi nýja hlið á Eyjakonunni sem hóf að semja eigin tónlist fyrir sextán árum.
Guðrún má vera ánægð með sitt framlag til þess mikla fjársjóðs sem Eyjalögin eru. Erfitt er að gera upp á milli flytjenda því öll stóðu sig afar vel. Þó verður vart hjá því komist að nefna sérstaklega Drífu Nadíu Thoroddsen. Hún er einn þeirra söngvara sem Guðrún kynntist í kórastarfi og reyndist sönn uppgötvun á tónleikunum – falin perla sem gaman verður að fylgjast með á komandi árum.
Tónleikar Guðrúnar voru án efa einn af hápunktum Goslokahátíðar 2026. Eru meðal eftirminnilegustu viðburða hátíðarinnar, ásamt fjölmennum tónleikum Mannakorns og fjölbreyttri dagskrá sem fyllti bæinn af lífi alla helgina. Fyrir þá sem voru í Eldheimum er kvöldið fyrst og fremst minnisstætt fyrir fallega tónlist, persónulegar sögur og það einlæga þakklæti sem Guðrún miðlaði til áheyrenda sinna.
Nokkrar myndir sem Óskar Pétur tók á tónleikunum:
