Meistaramót Golfklúbbs Vestmannaeyja hefst á morgun, miðvikudag, og lýkur á laugardaginn. Meistaramót GV er eitt elsta golfmót landsins og hefur verið haldið frá árinu 1939. Mótið er jafnframt stærsti viðburður sumarsins hjá GV þar sem félagsmenn keppa í mismunandi aldurs- og getuflokkum um meistaratitla klúbbsins.
Í ár eru 97 keppendur skráðir til leiks á mótið sem er metþátttaka. þá hefur þátttakan í barna- og unglingaflokki aldrei verið jafn mikil. Keppt verður í tíu flokkum á mótinu.
Ríkjandi meistarar Meistaramóts GV eru Örlygur Helgi Grímsson og Sóley Óskarsdóttir.