Ölduhæð raskar samgöngum – aðeins ein ferð farin það sem af er deginum
Herjólfur á leið til Eyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Siglingar milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar hafa gengið erfiðlega í dag vegna mikillar ölduhæðar við Landeyjahöfn. Þegar þetta er skrifað hefur aðeins tekist að sigla eina ferð.

Herjólfur sigldi frá Vestmannaeyjum klukkan 7:00 og frá Landeyjahöfn klukkan 10:45. Eftir það hafa allar áætlaðar ferðir verið felldar niður.

Fyrr í dag var tilkynnt að ferðir Herjólfs klukkan 12:00 og 13:15 og ferðir Baldurs klukkan 13:15 og 14:30 féllu niður vegna ölduhæðar í Landeyjahöfn.

Laust fyrir klukkan 14 var síðan tilkynnt að einnig féllu niður ferðir Herjólfs klukkan 14:30 frá Vestmannaeyjum og klukkan 15:45 frá Landeyjahöfn.

Ákvörðun um síðari ferðir dagsins hefur ekki verið tekin. Herjólfur hyggst gefa út nýja tilkynningu klukkan 16:00 um ferðir skipsins klukkan 17:00 frá Vestmannaeyjum og klukkan 18:15 frá Landeyjahöfn.

Jafnframt verður tilkynnt klukkan 15:00 hvort Baldur geti siglt ferðir sínar klukkan 15:45 frá Vestmannaeyjum og klukkan 17:00 frá Landeyjahöfn.

Veðurstofa Íslands gaf í morgun út gula viðvörun fyrir Suðurland og varaði við hvassviðri og mikilli ölduhæð við suðurströndina. Samkvæmt veðurspám er þó gert ráð fyrir að aðstæður fari batnandi þegar líða tekur á daginn.

Nýjustu fréttir

Ölduhæð raskar samgöngum – aðeins ein ferð farin það sem af er deginum
Myndasyrpa frá göngumessu
Myndband | 16 ára Eyjakona stefnir hátt í rallýcrossi
Eva Magnúsdóttir – Félagslífið stóð upp úr
Vilja herða reglur við Surtsey
Stefnir á eina ferð til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Plötuútgáfan hefur verið eitt stórt ævintýri
Gul veðurviðvörun á Suðurlandi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.