Lundaveiði heimiluð þrátt fyrir neikvæða umsögn Náttúrustofu
lundaveidi
Lundi veiddur í háf. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði frá 23. júlí til 15. ágúst, þrátt fyrir að Náttúrustofa Suðurlands hafi mælt gegn öllum veiðum á þessu ári vegna áframhaldandi hnignunar lundastofnsins. Ráðið segir hins vegar mikilvægt að viðhalda þeirri menningu sem tengist lundaveiðum, enda verði veiðarnar takmarkaðar og stundaðar af ábyrgð.

Fyrir ráðinu lágu umsagnir Náttúrustofu Suðurlands og Bjargveiðimannafélags Vestmannaeyja vegna lundaveiða sumarið 2026.

Í umsögn Náttúrustofu kemur fram að íslenski lundastofninn hafi dregist saman um helming á síðustu þremur áratugum. Ástandið sé verst í Vestmannaeyjum og megi rekja það fyrst og fremst til hlýnunar sjávar og minna fæðuframboðs. Þá segir að á meðan stofninn sé í svo mikilli niðursveiflu sé öll veiði stofnvistfræðilega ósjálfbær og stuðli að frekari fækkun fugla. Af þeim sökum mælir Náttúrustofa ekki með því að lundaveiðar verði heimilaðar árið 2026.

Bjargveiðimannafélag Vestmannaeyja leggur hins vegar til að veiðar verði heimilaðar frá 23. júlí til 15. ágúst. Í umsögn félagsins segir að lundaveiðar hafi um aldir verið hluti af lífsbjörg og menningu Eyjamanna og að mikilvægt sé að varðveita þá þekkingu og hefðir sem þeim fylgja. Félagið bendir jafnframt á að bjargveiðimenn hafi sjálfir átt frumkvæði að því að takmarka veiðar undanfarin ár vegna stöðu stofnsins og muni áfram hvetja félagsmenn til hófsemi og ábyrgðar.

Í bókun umhverfis- og skipulagsráðs segir að stýring veiða eigi fyrst og fremst að taka mið af stöðu lundastofnsins. Þrátt fyrir það samþykkti ráðið að heimila takmarkaðar veiðar frá 23. júlí til 15. ágúst.

Ráðið vísar til þess að reynsla síðustu ára sýni að þeir fáu dagar sem veiðar hafi verið heimilaðar séu fyrst og fremst nýttir til að viðhalda þeirri menningu sem fylgi lundaveiðum og úteyjarlífi almennt. Þá segir að lundaveiðimenn hafi sýnt ábyrgð í veiðum undanfarin ár og eru veiðifélögin hvött til að standa áfram vörð um nytjasvæði sín, hvetja félagsmenn til hófsemi og sýna lundastofninum virðingu.

Að lokum minnir ráðið á að allir sem stunda fuglaveiðar þurfi að hafa gilt veiðikort.

Nýjustu fréttir

Ingunn Ása – Mjög gaman að vera valin í Landsliðið
Fortíð Vestmannaeyja lifnaði við á sýningu Hlyns
Lundaveiði heimiluð þrátt fyrir neikvæða umsögn Náttúrustofu
Mikilvægur sigur ÍBV gegn Víkingi R.
Terra segir upp samningi við Vestmannaeyjabæ
Dalurinn – nýtt app fyrir þjóðhátíðargesti
Elena Rut – Langar að spila fyrir íslenska landsliðið í framtíðinni
Síld farin að hrygna suður af landinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.