Einn túr eftir fyrir sumarstopp
bergey_opf
Myndin er tekin um borð í Bergey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Ísfisktogarinn Bergey VE landaði fullfermi í Eyjum á mánudaginn. Rætt er við Ragnar Waage Pálmason skipstjóra um veiðiferðina á vef Síldarvinnslunnar.

„Aflinn var mest ýsa en síðan var þetta einnig ufsi, karfi og þorskur. Veitt var á Pétursey að undanskildum tveimur nóttum þegar leitað var að ufsa á Reynisdýpi og þar fékkst reyndar dálítill ufsi og einnig karfi. Á Pétursey var fínasta ýsuveiði og ýsan sem fékkst var stór og góð. Það var þokkalegasta veður í túrnum og segja má að hann hafi bara gengið vel,” sagði Ragnar Waage.

Bergey mun halda til veiða á ný á föstudaginn og þá er ráðgerður stuttur karfatúr. Áformað er að landa á ný næstkomandi mánudag og síðan verður tekið sumarstopp.

Nýjustu fréttir

Einn túr eftir fyrir sumarstopp
NovaFest á Vöruhúsinu á Þjóðhátíð
ÍBV tekur á móti Val í kvöld
Rafmótorinn tilbúinn – Herjólfur úr áætlun í allt að fjóra sólarhringa
Óboðnir gestir undir yfirborðinu
Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eldur í Maggý VE 108 – Slökkvistarf gekk greiðlega
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.