Skógurinn í Löngulág, fyrir ofan Malarvöllinn, er sannkölluð græn vin í hjarta Vestmannaeyjabæjar. Þar hefur trjágróður fengið að dafna og myndað skjólgott og notalegt svæði sem margir bæjarbúar þekkja vel.
Í skipulagsgögnum Vestmannaeyjabæjar kemur fram að Löngulág sé einn gróðursælasti reitur Vestmannaeyja hvað trjágróður varðar. Svæðið hefur verið nýtt til útivistar og gróðurræktar og þar er jafnframt að finna líflegt fuglalíf.
Trjálundurinn í Löngulág hefur orðið til fyrir tilstilli áhugasamra Eyjamanna, fyrirtækja og Skógræktarfélags Vestmannaeyja, sem gróðursett hafa þar tré og hlúð að svæðinu í gegnum tíðina. Halldór B. Halldórsson rölti um skóginn og fangar í myndbandinu þá sérstöku stemningu sem þar ríkir á fallegum sumardegi.
Í nýjum skipulagsáformum fyrir Malarvöll og Löngulág er gert ráð fyrir að græna svæðið verði áfram sameiginlegt dvalarsvæði bæjarbúa og að skipulag þess verði bætt svo það nýtist enn betur.