Mikið siglt og víða leitað eftir afla
Eyjarnar
Skipin í heimahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Bergey VE landaði um 55 tonnum í Grindavík í gær og Vestmannaey VE landaði fullfermi í Vestmannaeyjum í morgun. Þessa dagana er ekki mikil veiði fyrir sunnan land en þokkalegur afli hefur fengist úti fyrir suðausturlandinu. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi stuttlega við skipstjórana og fékk hjá þeim fréttir af gangi mála.

Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergey, sagði að túrinn hefði verið heldur rólegur enda hefðu þeir verið að veiðum suður af landinu. „Við byrjuðum á Reynisdýpinu og reyndum þar við ufsa með litlum árangri. Síðan var haldið á Pétursey og Vík og þar vorum við það sem eftir var af túrnum og aflinn var þorskur og ýsa. Holin voru mjög misjöfn, stundum þokkaleg en heldur léleg þess á milli. Bestu holin fengum við yfirleitt þegar var að skyggja. Í næstu túr verður farið á karfa og vonandi gengur það vel,” sagði Ragnar Waage.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að víða hefði verið farið í þessum túr. „Það var mikið siglt og víða leitað. Á fimmta sólarhring fóru í túrinn og það voru tekin 17 hol sem er mikið. Við byrjuðum á að leita að ufsa með litlum árangri og síðan var haldið austur eftir og víða reynt. Túrinn hófst á Pétursey og síðan var haldið á Vík, í Reynisdýpið, á Síðugrunn og á Ingólfshöfða. Farið var á Öræfagrunn þar sem við fengum ýsuskot en það reyndist skammvinnt. Að því loknu var farið í Breiðamerkurdýpi, í Sláturhúsið og í Lónsdýpið. Endað var loks á Langabanka þar sem fékkst þokkalegt af þorski. Það var semsagt víða farið og það var fínasta veður allan tímann. Í dag verður landað og síðan haldið til veiða á ný seinni partinn á morgun,” sagði Birgir Þór.

Nýjustu fréttir

Mikið siglt og víða leitað eftir afla
Skólastarf að hefjast á ný í FÍV
Íslendingar eru þjakaðir af launahækkunum
Óska eftir tilnefningum frá bæjarbúum
Aron Valtýsson – Hleypur maraþon fyrir Krabbavörn Vestmannaeyja
Millet-gengið tekur Eyjar alltaf með trompi
Páll aftur á Sprengisandi – Beint í djúpu laugina
Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.