Anika Hera tekur næsta skref í þjálfun
ÍAK-einkaþjálfari og þjálfari hjá Metabolic Eyjar.

Anika Hera Hannesdóttir, ÍAK-einkaþjálfari og þjálfari hjá Metabolic Eyjar, opnaði á dögunum AWIX Training, fjarþjálfun þar sem áhersla er lögð á styrktarþjálfun, næringu og einstaklingsmiðaða aðstoð.

Anika Hera útskrifaðist sem ÍAK-einkaþjálfari í maí 2024 og hóf fljótlega að taka einstaklinga í einkaþjálfun. Hún segir reynsluna hafa verið bæði skemmtilega og gefandi og veitt sér góðan grunn til að þróast áfram sem þjálfari. Í september sama ár hóf hún að þjálfa hóptíma hjá Metabolic Eyjar, þar sem hún hefur meðal annars stýrt almennum hóptímum og mömmunámskeiðum. Þar hefur hún stýrt almennum hóptímum auk mömmunámskeiða, en henni þykir sérstaklega gaman að vinna með ólíku fólki og fylgjast með því ná framförum.

Með auknum áhuga á næringu ákvað Anika að bæta við sig þekkingu á því sviði og lauk námskeiðinu Nutrition Science hjá Stanford. Markmiðið var að geta veitt fólki betri aðstoð og leiðsögn varðandi næringu samhliða þjálfuninni. Fjarþjálfun hafði lengi verið Aniku hugleikin enda hafði hún gert fjölda æfingaáætlana fyrir vini og vinkonur. Nýlega ákvað hún að láta verða af hugmyndinni og opnaði fyrir skráningar í AWIX Training.

„Með fjarþjálfuninni fæ ég tækifæri til að starfa meira sjálfstætt og víkka út starfssvið mitt. Ég elska að sjá árangur annarra, miðla þekkingu minni áfram og hjálpa fólki að ná markmiðum sínum,“ segir hún.

Þjálfunin er ætluð þeim sem eru tilbúnir að fylgja skipulögðu plani, efla sjálfsaga og sjálfsást, setja sér skýr markmið og leggja vinnu í bæði æfingar og mataræði. Jafnframt er lögð áhersla á að þátttakendur setji sjálfa sig og eigin heilsu í forgang.

Í AWIX Training fá þátttakendur sérsniðna æfinga- og/eða næringaráætlun, kennsluefni og vikulegt stöðumat. Þeir fá einnig endurgjöf á æfingar, regluleg samskipti við Aniku Heru og aðgang að smáforriti þar sem hægt er að fylgjast með framvindu og árangri.

Eyjafréttir spurðu Aniku Heru nokkurra spurninga um nýju fjarþjálfunina, leið hennar inn í þjálfarastarfið og hvað hún telur skipta mestu máli þegar kemur að árangri í líkamsrækt.

Hvað varð til þess að þú fórst út í þjálfun?
Ég æfði handbolta og þá eru alltaf miklar lyftingar inn á milli. Með tímanum jókst áhuginn alltaf meira að lyftingum og sprengikraftsæfingum í stað handboltans. Þegar ég fór sjálf að ná árangri í lyftingartækni var stundum potað í mig og spurt um aðstoð. Seinna meir var ég farin að taka vinkonur með mér í tækjasal sem treystu sér ekki einar og sögðu mér að ég yrði frábær einkaþjálfari, eftir það dreif ég mig í nám. Finnst einnig fátt meira gefandi en að sjá fólk öðlast meira sjálfstraust, verða sterkari og finna hvað hreyfing getur haft jákvæð áhrif á bæði líkamlega og andlega líðan.

Hvers konar þjónustu/þjálfun býður þú upp á?
Í fjarþjálfuninni minni hjá AWIX Training býð ég upp á alhliða fjarþjálfun sem er sniðin að markmiðum og þörfum hvers og eins. Þar er bæði æfinga- og næringarplan í boði, ásamt kennsluefni, vikulegum check-in, feedback á æfingar og stöðugum samskiptum við mig sem þjálfara. Markmiðið er að gets veitt þann stuðning og aðhald sem þarf til að ná markmiðum, efla sjálfsaga og skapa heilbrigðar venjur sem endast til lengri tíma. Einnig þjálfa ég hóptíma í Metabolic Eyjar þar sem áherslan er fjölbreytt og krefjandi þjálfun í góðum hópanda undir leiðsögn þjálfara. Þjálfunin byggir á METÓ-kerfi þar sem unnið er markvisst með styrk, kraft, þol og brennslu yfir vikuna. Æfingarnar, erfiðleikastig og kerfið er vandlega skipulagt til hámarka árangur hjá iðkendum.

Hver eru ráð þín til þeirra sem eru að stíga sín fyrstu skref í ræktinni?
Ekki reyna að gera allt í einu. Byrjaðu rólega, finndu hreyfingu sem þér finnst skemmtileg og einbeittu þér að því að byggja upp góðar venjur. Erfiðast er oft að mæta og ef þú nærð að festa þá venju í sessi verður allt annað auðveldara. Mikilvægt að muna að það tekur tíma að ná árangri og þú þarft ekki að vera fullkomin til að byrja. Það eru allir í sínu eigin ferli að spá í sjálfum sér hvað mest. Mitt síðasta ráð er því að vera ófeimin að fá aðstoð eða spyrja spurninga, maður veit ekki nema maður spyrji.

Hvernig myndir þú lýsa þjálfunarstílnum þínum?
Ég legg mikla áherslu á góða tækni, vera óhrædd við þyngdirnar og að byggja upp sjálfstraust í þjálfuninni. Fyrir mér snýst góð þjálfun þó ekki bara um að verða sterkari líkamlega, heldur líka um að skapa jákvætt samband við hreyfingu og hafa gaman af ferlinu. Þjálfarastíllinn minn er hvetjandi og krefjandi en ég aðlaga þjálfun að einstaklingnum. Finnst aðallega mikilvægt að fólk finni fyrir framförum og fari út úr æfingunni með góða tilfinningu.

Hver eru algengustu byrjendamistök fólks þegar kemur að líkamsrækt?
Að fara of hratt af stað, ætla gera allt í einu og setja sér óraunhæf markmið. Ásamt því að búast við skjótum árangri og gleyma að það tekur tíma að byggja upp t.d. styrk, þol og góðar venjur. Önnur mistök geta verið að setja einbeitinguna á að gera allt rétt þegar hún ætti að vera á því að mæta reglulega og stöðugt fyrst þegar verið er að byrja. Þegar góðar venjur komast í rútínu verður auðveldara að byggja ofan á þær og þróast áfram.

Hvað telur þú vera lykilinn að langvarandi árangri í líkamsrækt?
Að finna jafnvægi sem maður getur haldið út til lengri tíma. Þú þarft ekki að vera fullkomin alla daga, það er það enginn. Mæting er bæting þó það sé kannski bara 20 eða 30 mínútur. Mikilvægasta er að mæta stöðugt, hafa raunhæf markmið, læra að njóta ferlisins og hafa eigið heilbrigði í fyrsta sæti.

Hvað gerir þú sjálf til að halda þér í góðu formi?
Það er skyldumæting í vinnu eða skóla og ég hugsa um hreyfingu á svipaðan hátt. Þó mig langi ekki alltaf á æfingu þá mæti ég samt. Þetta er orðinn hluti af minni rútínu og þeim lífsstíl sem ég vil lifa til að stuðla að langvarandi heilsu og vellíðan. Ég drekk ekki áfengi, borða yfirleitt sama morgunmatinn og fylgi æfinga- og næringarplani stærsta hluta ársins til þess að hámarka eigin árangur en þegar ég fer í frí þá kem ég inn hreyfingu sem mér finnst skemmtileg og er alltaf meðvituð um næringuna sem ég fæ án þess að það hafi neikvæð áhrif. Matur er bensín fyrir líkamann til að vinna, hugsa, æfa o.s.frv. Finnst hvíldin líka mikilvæg og gera gæðamun þegar kemur að æfingum og næringu. En einnig snýst þetta um að velja sitt erfiði, næra sig og æfa vel núna til þess að hafa það gott seinna meir eða sleppa því og missa þessa heilsu á eldri árum. Ég vill leggja inn vinnuna núna á meðan ég er svona heppin með eigin heilbrigði, næra mig vel og hreyfa mig flesta daga vikunnar til þess að líða vel og njóta góðrar heilsu til lengri tíma.

Anika Hera tekur nú á móti fólki í fjarþjálfun og geta áhugasömir haft samband við hana til að fá frekari upplýsingar.

Nýjustu fréttir

Anika Hera tekur næsta skref í þjálfun
Farþegum með Herjólfi fækkar um rúm 14 prósent
Tómas Bent og félagar í Hearts tryggðu sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu
Myndband: Athafnasvæðin austur á Heimaey úr lofti
Jóhann Ingi tekur sæti Sæunnar til áramóta
Vaxandi lestur og fleiri áskrifendur hjá Eyjafréttum
Tölum um heilabilun – fræðsla í Vestmannaeyjum
Starfshópur mótar nýja ferjuáætlun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.