
Lestur á eyjafrettir.is hefur aukist verulega og áskrifendum Eyjafrétta fjölgað jafnt og þétt undanfarna mánuði. Um 318 þúsund heimsóknir voru skráðar á vefinn í apríl, sem er 85,6 prósenta aukning frá sama mánuði árið áður.
„Það er afar ánægjulegt að sjá þessa þróun. Fjölgun áskrifenda og aukinn lestur á vefnum er okkur mikil hvatning og staðfesting á því að öflug staðbundin fjölmiðlun skiptir samfélagið máli,“ segir Tryggvi Már Sæmundsson, ritstjóri Eyjafrétta.
Eyjafréttir hafa á undanförnum mánuðum lagt aukna áherslu á stafræna útgáfu og fjölbreytta fréttaþjónustu á vefnum. Frá 1. september taka jafnframt gildi nýjar áskriftarleiðir, stafræn áskrift og full áskrift.
Tryggvi segir hvert framlag skipta máli fyrir lítinn staðarmiðil.
„Hver áskrifandi styrkir grundvöll Eyjafrétta og gerir okkur kleift að halda áfram að þróa miðilinn og leggja aukna áherslu á eigið og vandað efni. Við finnum jafnframt vel fyrir áhuga lesenda, sem senda okkur reglulega fréttaskot, myndir og ábendingar um áhugavert efni. Sú þátttaka er ómetanleg og á stóran þátt í því að gera miðilinn fjölbreyttari og betri.“

Fámenn en fjölbreytt ritstjórn Eyjafrétta leggur áherslu á að sinna sem flestum hópum samfélagsins og endurspegla fjölbreytileika mannlífsins í Vestmannaeyjum.
„Á ritstjórninni er jöfn kynjaskipting og breitt aldursbil. Það skilar sér í ólíkum sjónarhornum og fjölbreyttum efnistökum. Við viljum fjalla um allt frá stóru samfélagsmálunum til litlu augnablikanna sem saman mynda sögu Vestmannaeyja.“
Á síðustu misserum hefur útgáfa Eyjafrétta færst í auknum mæli yfir á stafrænt form. Markmiðið er þó hið sama og áður: að segja frá því sem gerist í Eyjum, veita stjórnvöldum og öðrum aðhald, varðveita sögu samfélagsins og skapa vettvang fyrir ólíkar raddir og sjónarmið.
Ýmis áform eru í farvatninu um að styrkja fréttaþjónustu Eyjafrétta enn frekar á komandi misserum.
„Við erum með ýmis áform í farvatninu um að efla fréttaþjónustu félagsins enn frekar. Þar verður áfram lögð áhersla á vandaða staðbundna umfjöllun, aukna þjónustu við lesendur og að nýta betur þá möguleika sem stafrænir miðlar bjóða upp á. Við hlökkum til að segja nánar frá þeim áformum þegar nær dregur,“ segir Tryggvi.
Ný verðskrá Eyjafrétta tekur gildi 1. september 2026. Samhliða verður áskriftarfyrirkomulagið einfaldað og framvegis verða tvær áskriftarleiðir í boði: stafræn áskrift og full áskrift. Breytingin nær einnig til núverandi áskrifenda. Þeir sem nú eru með netáskrift munu greiða 1.290 krónur á mánuði frá og með 1. september. Aðrar núverandi áskriftir færast yfir í fulla áskrift […]