Breytt áskriftarverð hjá Eyjafréttum frá 1. september
Verð á núverandi netáskriftum verður 1.290 krónur á mánuði og verð annarra áskrifta 1.490 krónur
Ritstjórn Eyjafrétta leggur áherslu á fjölbreytta umfjöllun um vestmannaeyskt samfélag. Þátttaka lesenda, ábendingar og fréttaskot eru mikilvægur hluti af starfi miðilsins.

Ný verðskrá Eyjafrétta tekur gildi 1. september 2026. Samhliða verður áskriftarfyrirkomulagið einfaldað og framvegis verða tvær áskriftarleiðir í boði: stafræn áskrift og full áskrift.

Breytingin nær einnig til núverandi áskrifenda. Þeir sem nú eru með netáskrift munu greiða 1.290 krónur á mánuði frá og með 1. september. Aðrar núverandi áskriftir færast yfir í fulla áskrift og verður mánaðargjaldið 1.490 krónur.

Breytingarnar eru gerðar samhliða aukinni áherslu á stafræna miðlun og fækkun prentaðra tölublaða. Á undanförnum mánuðum hefur aukin áhersla verið lögð á daglega fréttaþjónustu á eyjafrettir.is, rafræna útgáfu blaðsins og vandað efni sem eingöngu er aðgengilegt áskrifendum.

Prentútgáfan hverfur þó ekki. Áfram verða gefin út þrjú til fjögur vönduð sérblöð á ári, þar sem meðal annars verður lögð áhersla á mannlíf, viðtöl, sögu Vestmannaeyja og dýpri umfjöllun um samfélagið.

Breytingarnar eru liður í því að styrkja rekstrargrundvöll Eyjafrétta og beina auknum krafti að efnisvinnslu og stafrænni þjónustu. Markmiðið er áfram að veita öfluga og sjálfstæða fréttaþjónustu í Vestmannaeyjum, fylgjast með því sem gerist í samfélaginu og varðveita sögu Eyjanna.

Áskrifendum Eyjafrétta hefur fjölgað jafnt og þétt undanfarna mánuði, samhliða auknu framboði á vönduðu áskriftarefni á vefnum. Viðtökurnar gefa góð fyrirheit og sýna að lesendur kunna að meta öfluga, sjálfstæða og staðbundna fréttaþjónustu.

Með áskrift fá lesendur ekki aðeins aðgang að öllu efni Eyjafrétta heldur styðja jafnframt við áframhaldandi starf sjálfstæðs fjölmiðils í Vestmannaeyjum.

Nýja verðskráin tekur gildi 1. september 2026. Þeir áskrifendur sem þegar eru í áskrift en vantar vefaðgang geta smellt hér og fyllt út formið hægra megin á síðunni.

Nýjustu fréttir

Ábending frá Herjólfi
ÍBV og Þór jöfn að stigum fyrir leik kvöldsins
Snorri Steinn velur landsliðshópinn fyrir undankeppni EM – Elliði Snær með
Breki VE tekur þátt í haustralli Hafró
Gul viðvörun fyrir allt landið á sunnudag
Áhyggjur af fjármögnun Herjólfs og Landeyjahafnar
Boða átak vegna gáma og númerslausra bíla
Tvær ferðir til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.