Landað í lok kvótaárs
Trollið tekið inn. Myndin er tekin um borð í Bergey. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Bergey VE og Vestmannaey VE hafa komið að landi með ágætan afla nú í lok kvótaársins. Rætt er stuttlega við skipstjórana á vef Síldarvinnslunnar. Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergey, upplýsti að Bergey hefði landað í Eyjum í gærmorgun. „Við vorum með rétt tæp 70 tonn og aflinn var mest þorskur. Við hófum túrinn í Meðallandsbugtinni og tókum þar tvo hol. Þá var haldið á Ingólfshöfðann en einungis eitt hol tekið þar. Þá lá leiðin í Berufjarðarálinn þar sem hafði verið ágæt veiði en hún fór minnkandi eftir að við komum. Veitt var í Berufjarðarálnum á meðan bjart var en farið út í kanta þegar dimmdi. Nú er verið að kveðja þetta kvótaár og nýtt að ganga í garð og á þessum tímamótum eru menn bara brattir,” sagði Ragnar.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að landað hefði verið í Eyjum í morgun að loknum karfatúr. „Við vorum með um 56 tonn og það var farið allvíða í túrnum. Það var byrjað í Sparisjóðnum, þaðan haldið á Belgableiðuna og síðan á Sneiðina og í Háfadýpið. Undir lokin var veitt í Reynisdýpinu og á Víkinni. Við lönduðum áður fullfermi í Grindavík á sunnudaginn. Þá var aflinn mest þorskur sem fékkst í Berufjarðarálnum þar sem var fínasta veiði. Nú er nýtt kvótaár að ganga í garð og auðvitað eru það alltaf ákveðin tímamót fyrir okkur,” sagði Birgir Þór.

Nýjustu fréttir

Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.