Metþátttöku í Sumarlestri fagnað með lokahófi
Þessi myndarlegi kappakstursbíll er í anda þema Sumarlestursins. Börnin heita Victoria Sól og William.

Lokahóf Sumarlesturs Bókasafns Vestmannaeyja verður haldið laugardaginn 29. ágúst kl. 13.00. Þar verður fjölbreytt dagskrá í boði til að fagna dugnaði vestmannaeyskra barna við lesturinn í sumar.

Metþátttaka var í Sumarlestrinum í ár, en alls skráðu 223 börn sig til leiks.

Rithöfundurinn Embla Bachmann mætir á lokahófið, les úr bókum sínum og kynnir jafnframt nýja bók sem væntanleg er fyrir jól.

Dregið verður úr miðunum sem börnin skiluðu inn fyrir hverja lesna bók og fá þau sem skráðu sig í Sumarlesturinn öll glaðning frá Bókasafninu.

Kappakstur á bílabrautum og bílasýning

Þema Sumarlestursins í ár var kappakstur og hefur barnadeild Bókasafnsins verið skreytt í takt við það. Þar má meðal annars finna stóran kappakstursbíl sem vakið hefur mikla athygli í sumar.

Gestir geta spreytt sig á kappakstri á bílabrautum frá síðustu öld og boðið verður upp á myndir til að lita. Þá verður bílasýning á planinu fyrir framan Bókasafnið.

Léttar veitingar verða í boði og eru öll velkomin, segir í tilkynningu frá skipuleggjendum.

Nýjustu fréttir

Kostnaður við NSL-4 stefnir í 3,1 milljarð – umfang tjónsins enn óljóst
Metþátttöku í Sumarlestri fagnað með lokahófi
Snýr aftur til Eyja með penslana í farteskinu
Landað í lok kvótaárs
100 ára afmælisblað Taflfélagsins – prentútgáfa og vefblað
Anika Hera tekur næsta skref í þjálfun
Farþegum með Herjólfi fækkar um rúm 14 prósent
Tómas Bent og félagar í Hearts tryggðu sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.