Eyjakonur sækja toppliðið heim
Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Eyjakonur í ÍBV eiga krefjandi verkefni fyrir höndum í Bestu deildinni í dag þegar þær sækja topplið Breiðabliks heim. Flautað verður til leiks á Eikarvellinum klukkan 16:00.

ÍBV er í fjórða sæti deildarinnar með 24 stig eftir 16 leiki. Stjarnan er tveimur stigum ofar í þriðja sæti með 26 stig en Grindavík/Njarðvík fylgir fast á hæla Eyjakvenna með 22 stig.

Breiðablik er á toppi deildarinnar með 36 stig, þremur stigum á undan FH sem er í öðru sæti. Blikar hafa unnið 12 af 16 leikjum sínum í sumar.

Baráttan um þriðja sætið er því áfram hörð. Stjarnan mætir Fram á Lambhagavellinum klukkan 14:00 í dag og Grindavík/Njarðvík sækir Víking heim á sama tíma. Þegar flautað verður til leiks hjá ÍBV tveimur tímum síðar mun því liggja fyrir hvernig þeim leikjum lauk.

Leikur Breiðabliks og ÍBV hefst sem fyrr segir klukkan 16:00 á Eikarvellinum.

Nýjustu fréttir

Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.