Þór bjargaði fólki úr sjálfheldu í Reynisfjöru
Björgunarskipið Þór frá Vestmannaeyjum tók þátt í björgun karls og konu sem lent höfðu í sjálfheldu í Reynisfjöru. Myndir/Landsbjörg.

Björgunarskipið Þór frá Vestmannaeyjum tók þátt í björgun karls og konu sem lent höfðu í sjálfheldu í Reynisfjöru síðdegis í dag.

Björgunarsveitir á Suðurlandi voru boðaðar út um hálfsexleytið eftir að fólkið hafði gengið meðfram klettum á fjöru en ekki gætt að hækkandi sjávarstöðu. Fyrstu boð bárust björgunarsveitinni Víkverja í Vík í Mýrdal en skömmu síðar voru fleiri sveitir, allt frá Kirkjubæjarklaustri að Árborgarsvæðinu, kallaðar út ásamt Þór.

Fólkið var staðsett með dróna og skömmu síðar var Þór kominn að Reynisfjöru. Víkverji kom með léttan gúmbát frá Vík og tókst að lenda honum í fjörunni skammt frá fólkinu. Áhöfn Þórs leiðbeindi því að bátnum og var það síðan flutt öruggt í Reynisfjöru. Fólkið var heilt á húfi og héldu björgunarsveitir þá heim.

Skömmu eftir útkallið í Reynisfjöru barst Landsbjörg önnur aðstoðarbeiðni vegna einstaklings í sjálfheldu á Hafnarfjalli. Björgunarsveitir á Vesturlandi voru boðaðar út og óskað var eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar til að flytja viðkomandi niður að bílum björgunarsveita.

Nýjustu fréttir

Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.