ÍBV tapaði með níu marka mun gegn Haukum
Frá síðustu leiktíð. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

ÍBV og Haukar mættust á Ásvöllum í lokaleik fyrstu umferðar Olís deildar karla í kvöld, þar sem Haukar höfðu betur, 38-29.

Leikurinn var nokkuð jafn á upphafsmínútunum og var staðan 3-3 eftir átta mínútur. Haukar tóku þá yfir og höfðu nokkra yfirburði það sem eftir lifði fyrri hálfleiks. Þeir leiddu með sjö mörkum í hálfleik, 18-11.

Haukar voru áfram með yfirhöndina í síðari hálfleik. Mest náði ÍBV að minnka muninn í fimm mörk, en eftir það juku Haukar forskot sitt á ný. Mest náðu þeir tíu marka forystu, 34-24, og unnu að lokum öruggan níu marka sigur, 38-29.

Daníel Þór Ingason var markahæstur í liði ÍBV með sex mörk. Freyr Aronsson átti frábæran leik fyrir Hauka og skoraði 11 mörk. Petar Jokanovic varði fimm skot í marki Eyjamanna.

Mörk ÍBV: Daníel Þór Ingason 6 mörk, Kristófer Ísak Bárðarson  5, Sigtryggur Daði Rúnarsson 5, Atli Steinn Arnarson 4, Anton Frans Sigurðsson 2, Dagur Arnarsson 2, Jason Stefánsson 2,  Sveinn José Rivera 2, Andri Magnússon 1.

Úrslit 1. umferðar Olís deildar karla:

  • Fram 38 – 34 Þór
  • FH 38 – 31 Stjarnan
  • Afturelding 35 – 28 Víkingur R.
  • Selfoss 30 – 34 Valur
  • HK 28 – 37 KA
  • Haukar 38 – 29 ÍBV

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði með níu marka mun gegn Haukum
Vestmannaeyjahlaupið fór fram í blíðskaparveðri
ÍBV missti niður tveggja marka forskot gegn Stjörnunni
Skemmtilegast að sauma í skólanum
Gaman að vera byrjaður í skólanum
Nýr hópur, nýjar áskoranir og mikil tilhlökkun hjá ÍBV
Systkinaafsláttur nær nú einnig til skráningardaga
Tvö karlalið ÍBV í eldlínunni í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.