ÍBV og Haukar mættust á Ásvöllum í lokaleik fyrstu umferðar Olís deildar karla í kvöld, þar sem Haukar höfðu betur, 38-29.
Leikurinn var nokkuð jafn á upphafsmínútunum og var staðan 3-3 eftir átta mínútur. Haukar tóku þá yfir og höfðu nokkra yfirburði það sem eftir lifði fyrri hálfleiks. Þeir leiddu með sjö mörkum í hálfleik, 18-11.
Haukar voru áfram með yfirhöndina í síðari hálfleik. Mest náði ÍBV að minnka muninn í fimm mörk, en eftir það juku Haukar forskot sitt á ný. Mest náðu þeir tíu marka forystu, 34-24, og unnu að lokum öruggan níu marka sigur, 38-29.
Daníel Þór Ingason var markahæstur í liði ÍBV með sex mörk. Freyr Aronsson átti frábæran leik fyrir Hauka og skoraði 11 mörk. Petar Jokanovic varði fimm skot í marki Eyjamanna.
Mörk ÍBV: Daníel Þór Ingason 6 mörk, Kristófer Ísak Bárðarson 5, Sigtryggur Daði Rúnarsson 5, Atli Steinn Arnarson 4, Anton Frans Sigurðsson 2, Dagur Arnarsson 2, Jason Stefánsson 2, Sveinn José Rivera 2, Andri Magnússon 1.
Úrslit 1. umferðar Olís deildar karla: