Alþýðutónlistarhópurinn Vinir og vandamenn heldur síðbúna útgáfutónleika í Eldheimum laugardaginn 19. september frá klukkan 17.00 til 19.00. Þar verða flutt sjaldheyrð og jafnvel óútgefin Eyjalög ásamt þekktari perlum sem tónleikagestir fá að syngja með.
Tónleikarnir áttu upphaflega að fara fram í maí en þá settu samgöngur strik í reikninginn. Nú er hópurinn hins vegar á leið til Eyja með fjölbreytta dagskrá þar sem tónlistararfleifð Vestmannaeyja verður í aðalhlutverki.
Vinir og vandamenn samanstendur að mestu af afkomendum og vinum Oddgeirs Kristjánssonar og Ása í Bæ. Uppistaðan á tónleikunum verður lög af nýútkominni plötu hópsins, Hve dátt er hér…, sem er aðgengileg á Spotify.
Á plötunni má meðal annars finna fyrsta þjóðhátíðarlagið frá 1933, Setjumst að sumbli, sem nú er gefið út í fyrsta sinn, og þjóðhátíðarlagið frá 1941, Dagur og nótt í Dalnum. Bæði lögin eru eftir Oddgeir Kristjánsson og Árna úr Eyjum.
Á tónleikunum fær fólk einnig að heyra Rauða hunda, sem Leifur Geir segir vera fyrsta lagið sem Oddgeir samdi. Lagið fjallar um göróttan drykk, apótekaraspíra sem blandaður var rauðum ávaxtalit.
Lagið hefur aldrei verið gefið út og hafði að öllum líkindum ekki heyrst í um 90 ár þegar hópurinn flutti það í Salnum í apríl síðastliðnum.
Á dagskránni verða einnig Sævarsvísur, fallegur vísnabálkur sem Ási í Bæ samdi um Sævar í Gröf eftir andlát hans, auk fleiri sjaldheyrðra Eyjalaga.
Akóges, sem fagnar 100 ára afmæli í ár, verður einnig heiðrað á tónleikunum. Þar verður frumflutt nýtt og hressilegt afmælislag við texta Leifs Geirs.
Lögin verða flutt í þeim anda sem Oddgeir og félagar gerðu í hvítu tjöldunum og á skemmtunum í Akóges á árum áður – með einföldum hljóðfærum, röddum og alþýðlegum blæ.
Inn á milli laga verður fjallað um tilurð þeirra og bakgrunn og rýnt í textana. Eftir því sem líður á tónleikana verður þáttur áheyrenda aukinn og gestum gefið tækifæri til að taka undir í gömlum og góðum Eyjalögum.
Verkefni Vina og vandamanna snýst um að halda eldri Eyjalögum á lofti og bjarga þeim sem eiga á hættu að gleymast. Aðstandendur benda á að lögin og textarnir séu órjúfanlega samofin sögu Eyjanna og geymi lifandi heimildir um lífsbaráttu, náttúru, menningu, sjómennsku og litríkar persónur bæjarlífsins.
Öllum ágóða af tónleikunum verður varið til áframhaldandi vinnu hópsins við varðveislu sjaldheyrðari Eyjalaga. Miðar eru seldir á Tix.is.