ÍBV með ótrúlegan endurkomursigur gegn Fram
Úr leik ÍBV og Selfoss í Eyjum. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

ÍBV og Fram mættust í Lambhagahöllinni í 3. umferð Olís deildar karla í kvöld. Eyjamenn unnu þar frábæran endurkomusigur, 30-33, eftir að hafa verið níu mörkum undir í fyrri hálfleik.

Jafnræði var með liðunum framan af í fyrri hálfleik og var staðan jöfn, 8-8, eftir átta mínútna leik. Framarar tóku þá að síga fram úr Eyjamönnum og juku forskot sitt jafnt og þétt. Mest náðu þeir níu marka forskoti, 19-10. Eyjamönnum tókst að minnka muninn undir lok fyrri hálfleiks og var staðan 19-14, Fram í vil, þegar flautað var til hálfleiks.

Frábær síðari hálfleikur hjá ÍBV

ÍBV hóf síðari hálfleik af miklum krafti og jafnaði metin í 22-22 þegar tæpar tíu mínútur voru liðnar af hálfleiknum. Framarar svöruðu þá með því að ná aftur tveggja marka forskoti og var staðan 25-23 þegar stundarfjórðungur var til leiksloka.

Eyjamenn komust í fyrsta sinn yfir síðan á annarri mínútu leiksins þegar skammt var eftir og var staðan þá 28-29. ÍBV reyndist svo sterkari aðilinn á lokakaflanum og tryggði sér frábæran þriggja marka sigur. Lokatölur leiksins 30-33.

Dagur Arnarsson var markahæstur í liði ÍBV með sjö mörk. Haukur Ingi Hauksson, hjá Fram, var markahæstur í leiknum með 11 mörk. Sigurmundur Gísli Unnarsson varði níu skot í marki ÍBV og Petar Jokanovic fjögur.

ÍBV situr, eftir þrjár umferðir, í fjórða sæti deildarinnar með fjögur stig á meðan Fram er í sætinu fyrir ofan með jafn mörg stig.

Mörk ÍBV: Dagur Arnarsson 7 mörk, Sigtryggur Daði Rúnarsson 5, Sveinn José Rivera 5, Andri Magnússon 4, Anton Frans Sigurðsson 4, Magnús Dagur Jónatansson 3, Daníel Þór Ingason 2, Atli Steinn Arnarson 1, Haukur Leó Magnússon 1, Kristófer Ísak Bárðarson 1.

 

Nýjustu fréttir

ÍBV með ótrúlegan endurkomursigur gegn Fram
Hætt við efnistöku við Eldfellsveg
Vosbúð styrkir mikilvægt starf Krabbavarnar
Orka náttúrunnar verður bakhjarl Uppsprettu
Halldór smíðakennari – Stoltur af mínu fólki
Samningi við Endurvinnsluna sagt upp vegna breyttra áherslna hjá Heimaey
Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur opnað fyrir umsóknir
Emil Gautason í lokahóp u-17 fyrir undankeppni EM
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.