Sjálfstæðisflokkurinn hefur vetrardagskrá sína með opnum fundi í Ásgarði á morgun, laugardaginn 26. september, klukkan 12. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum.
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, verður gestur fundarins. Alþingismennirnir Ingveldur Anna Sigurðardóttir, Árni Helgason og Sigurður Örn Hilmarsson verða einnig á fundinum, svara fyrirspurnum og ræða við fundargesti.
Í tilkynningunni eru Vestmannaeyingar hvattir til að mæta og ræða við formanninn og þingmennina um þau mál sem brenna á þeim í upphafi þingvetrar. Fundurinn er öllum opinn og boðið verður upp á kaffi og meðlæti.