Karlaráðstefnan Skjöldur verður haldin í þriðja sinn í Eyjum laugardaginn 17. október. Dagskráin hefst í Sagnheimum klukkan 14 og að þessu sinni koma fram Bergur Ebbi, Sveppi, og Jónas Sigurðsson.
Bergur Ebbi mun fjalla um mennskuna á tímum gervigreindar og setja í samhengi við atriði úr sögu okkar samfélags. Sveppi verður með uppistand eins og honum einum er lagið og mun Jónas veltir fyrir sér spurningunni „Hvað merkir að vera karlmaður í dag?“
Dagskránni í Sagnheimum lýkur klukkan 17:30 en þá tekur við samvera og smakkupplifun á Brothers Brewery áður en þátttakendur setjast að kvöldverði á Einsa Kalda klukkan 19.
Skjöldur er ætlaður karlmönnum á öllum aldri. Nánari upplýsingar um viðburðinn og skráningu má finna á vef Visku.