Friðrik Páll Arnfinnsson, slökkviliðsstjóri í Vestmannaeyjum, hefur sagt upp starfi sínu og lætur af störfum um áramót. Hann hefur stýrt liðinu undanfarin tíu ár en verið í slökkviliðinu í þrjá áratugi. Við tekur starf verkstjóra hjá HS Veitum.
Í samtali við Eyjafréttir segir Friðrik Páll að honum hafi þótt kominn tími til að breyta til. Hann er menntaður rafvirki og sótti um verkstjórastarfið hjá HS Veitum og fékk það.
Friðrik Páll er og hefur verið eini starfsmaður slökkviliðsins í fullu starfi. Hann viðurkennir að það sé lýjandi að vera á vakt eða bakvakt allan sólarhringinn, alla daga ársins. Það hafi haft sitt að segja í ákvörðuninni um að breyta til. Blessunarlega hafi þó ekki orðið stórbrunar í Eyjum um langt skeið.
Þegar Friðrik Páll lítur yfir árin tíu í starfi slökkviliðsstjóra standa bætt aðstaða og tækjakostur liðsins helst upp úr. Þar nefnir hann körfubílinn sem kom árið 2018 og nýja slökkvistöð sem tekin var í gagnið árið 2022.
Sé litið yfir allan þrjátíu ára feril hans hjá slökkviliðinu er stórbruninn í frystihúsi Ísfélagsins árið 2000 honum eftirminnilegastur. Þegar sá eldsvoði varð hafði Friðrik Páll verið í liðinu í fjögur ár.