Krabbavörn Vestmannaeyja minnir á bleikan október og þakkar þann fjölbreytta stuðning sem málefnið fær í samfélaginu. Bleikur dagur verður á morgun, miðvikudaginn 21. október og víða er málefninu lagt lið með bleikum messum og samkomum, boltaleikjum, kótelettukvöldum, bleikum kökum og fleiru.
Krabbavörn heldur bleikt boð föstudagskvöldið 23. október þar sem allir eru hjartanlega velkomnir. Boðið verður upp á mat með suðrænu ívafi að hætti Einsa kalda. Hafdís Víglundsdóttir og vinir hennar sjá um ABBA-skemmtun og gestir geta tekið undir í söng. Þá verður happdrætti með mörgum vinningum.
Bleikur blær verður yfir kvöldinu og vonast er til að sem flest njóti samverunnar, ungir sem eldri, karlar og konur. Húsið opnar kl. 19.00 og borðhald hefst kl. 19.30. Miðar fást í Skvísubúðinni og Kubuneh.
Nánari upplýsingar og auglýsingar um kvöldið má finna hjá Krabbavörn Vestmannaeyja.