Bleiki dagurinn setti svip á morgunkaffið hjá Vinnslustöðinni í dag, miðvikudaginn 21. október. Boðið var upp á kaffi og bakkelsi að venju á þessum degi og flestar terturnar voru að sjálfsögðu bleikar.
Á heimasíðu Vinnslustöðvarinnar segir Helena Björk Þorsteinsdóttir að það sé alltaf gaman að gera aðeins meira úr morgunkaffinu. Bleika bakkelsið hafi slegið tóninn og samverustundir sem þessar skapi góðan anda og gefi starfsfólki tækifæri til að setjast niður saman og spjalla. Um leið sé verið að sýna mikilvægu málefni stuðning.
Á Bleika deginum hvetur Krabbameinsfélag Íslands landsmenn til að bera Bleiku slaufuna og klæðast bleiku til að sýna konum sem greinst hafa með krabbamein stuðning og samstöðu.
Vinnslustöðin sendir jafnframt hlýjar kveðjur til allra sem takast á við krabbamein og þeirra sem standa þeim nærri. Hér má sjá fleiri myndir frá morgninum.
